![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf heilbrigðisritara á L3 Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
19.07.2024
Umsóknarfrestur
01.08.2024
Starf heilbrigðisritara á L3 Landakoti
Við viljum ráða jákvæðan og þjónustulipran einstakling með mikla samskiptahæfni í starf heilbrigðisritara á L3 Landakoti. Um er að ræða dagvinnustarf, virka daga, sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Á deildinni starfar samhentur hópur í þverfaglegu teymi. Hjúkrunardeildin er 16 rúma og er hluti af Landspítala. Skjólstæðingarnir deildarinnar hafa gilt færni- og heilsumat og eru að bíða eftir vist á hjúkrunarheimili. Lögð er áhersla á jákvætt framlag sérhvers einstaklings og þátttöku og samvinnu í daglegum störfum deildarinnar. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða aðlögun.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er nú 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Upphaf starfs er 1. september, eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Upplýsingagjöf
Símavarsla
Sjúklingabókhald
Gagnaumsjón og almenn skrifstofustörf
Þjónusta við skjólstæðinga, aðstandendur og samstarfsfólk
Birgðaumsjón og frágangur
Ýmis sérverkefni í samvinnu við deildarstjóra og vaktstjóra
Hæfniskröfur
Heilbrigðisritaramenntun, stúdentspróf og/eða reynsla af skrifstofustörfum
Jákvæðni og lipurð í samskiptum
Góð íslenskukunnátta
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, skrifstofustörf, móttaka, ritari, skrifstofumaður
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 01.08.2024
Nánari upplýsingar veitir
Borghildur Árnadóttir, borgharn@landspitali.is
Bára Benediktsdóttir, baraben@landspitali.is
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Starf heilbrigðisritara á L3 Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
19.07.2024
Umsóknarfrestur
01.08.2024