Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.07.2024

Umsóknarfrestur

09.08.2024

Sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár

Göngudeild skurðlækninga í Fossvogi auglýsir eftir sérfræðingi í hjúkrun sjúklinga með sár.

Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk auk klínískra starfa er ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsóknar-, gæða og þróunarvinnu. Enn fremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir. Starfshlutfall er 100% og ráðið er í starfið frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi.

Sáramiðstöð Landspítala veitir þverfaglega þjónustu sem byggir á gagnreyndri þekkingu og er leiðandi í meðferð og kennslu á sviði sárameðferðar. Þar fer fram greining, ráðgjöf og meðferð langvinnra og erfiðara sára sem þarfnast sérhæfðrar meðferðar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun hjúkrunar og þjónustu innan sérgreinar

  • Þátttaka í faglegri teymisvinnu tengd sérsviði og sáramiðstöð

  • Klínísk störf innan sáramiðstöðvar

  • Frumkvæði og innleiðing nýrra verkferla

  • Kennsla og fræðsla

  • Ráðgjöf til sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna

  • Rannsóknir og gæðastörf

Hæfniskröfur

  • Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun

  • Íslenskt starfsleyfi sem sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár

  • Starfsreynsla í hjúkrun sjúklinga sem þarfnast sérhæfðar sárameðferðar

  • Leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Reynsla af teymisvinnu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, sérfræðingur í hjúkrun, hjúkrun

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Sigrún Arndís Hafsteinsdóttir, sigrunah@landspitali.is

Sími: 620 1650

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hjúkrun sjúklinga með sár

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.07.2024

Umsóknarfrestur

09.08.2024