![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5O2Qh1STpoZZ20Y7Aa2839/e6807c69bc61724a0910aef75785034f/Merki_HH_-_mi__ja___a__n_bakgrunns_665x762.png)
Þjónustuaðili
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.07.2024
Umsóknarfrestur
08.08.2024
Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins (HH) óskar eftir að ráða heilbrigðisgagnafræðing til starfa á tveimur starfstöðvum. Starfstöðvarnar eru Færni- og heilsumatsnefnd og Söguteymi deildar rafrænnar þjónustu. Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi til að koma til liðs við okkur. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt í starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Um er að ræða 100% ótímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Meðal verkefna er innköllun gagna frá fagaðilum í tengslum við móttöku umsókna til Færni- og heilsumatsnefndar og umsýsla sjúkra- og heilbrigðisgagna vegna vistunarmats svo sem útsendingar bréfa í samvinnu við samstarfsfólk. Viðkomandi mun m.a. bera ábyrgð á miðlægri umsýslu og afhendingu gagna úr sjúkrarskrá, sjá um úttektir og greiningu gagna ásamt því að koma ýmsum verkefnum tengdum gagnavinnslu og vistun í góðan farveg.
Nánari upplýsingar um starfsemi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins má finna á vef HH (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Ber ábyrgð á ritun og umsýslu sjúkraskrárgagna og í samvinnu við annað samstarfsfólk
Afhending gagna úr sjúkraskrá
Móttaka, skráning, skönnun og meðferð gagna í sjúkraskrárkerfinu Sögu
Skipulagning og vandamálagreining á Sögukerfinu
Úttekt og greining gagna
Samskipti við skjólstæðinga, aðrar heilbrigðisstofnanir, tryggingarfélög, lögfræðinga og fleiri
Önnur tilfallandi störf
Hæfniskröfur
Nám í heilbrigðisgagnafræði skilyrði
Starfsleyfi frá Embætti landlæknis
Haldgóð reynsla af vinnu við sjúkraskrárkerfi Sögu skilyrði
Reynsla af ritarastarfi kostur
Þekking og reynsla af upplýsinga- og skjalastjórnun
Góð undirstaða í notkun á upplýsingatækni og tölvubúnaði
Reynsla af Heilsugátt kostur
Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum er nauðsynleg
Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
Góð almenn enskukunnáttu nauðsynleg
Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinu sakavottorði.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.08.2024
Nánari upplýsingar veitir
Anna Sigríður Vernharðsdóttir, anna.sigridur.vernhardsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5000
Nanna Sigríður Kristinsdóttir, nanna.sigridur.kristinsdottir@heilsugaeslan.is
Sími: 513-5000
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/5O2Qh1STpoZZ20Y7Aa2839/e6807c69bc61724a0910aef75785034f/Merki_HH_-_mi__ja___a__n_bakgrunns_665x762.png)
Þjónustuaðili
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu
Upplýsingar um starf
Starf
Heilbrigðisgagnafræðingur - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
19.07.2024
Umsóknarfrestur
08.08.2024