Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Geislafræðingur óskast á geislameðferðardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

15.07.2024

Umsóknarfrestur

29.07.2024

Geislafræðingur óskast á geislameðferðardeild

Landspítali auglýsir starf geislafræðings á geislameðferðardeild laust til umsóknar.

Á deildinni fer fram geislameðferð krabbameinssjúklinga og undirbúningur hennar. Deildin er sú eina sinnar tegundar á Íslandi og mikil þróun hefur verið í tækni og tækjabúnaði undanfarin ár.

Við leitum að öflugum einstaklingi sem sýnir frumkvæði og á auðvelt með að vinna í teymi. Starfið krefst mikillar samvinnu og þverfaglegs samráðs.

Í boði er einstaklingshæfð aðlögun í samstarfi við reynda starfsmenn. Gott er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Starfshlutfall er 80-100%, dagvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna að undirbúningi geislameðferðar, m.a. við tölvusneiðmyndatæki deildarinnar

  • Veita geislameðferð

  • Taka þátt í þverfaglegri teymisvinnu m.a. við tryggingu á nákvæmni meðferðarþátta

  • Taka þátt í að innleiða nýja tækni og skilgreina verkferla

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi geislafræðings

  • Góð samskiptahæfni og geta til að vinna í teymi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, geislafræðingur, teymisvinna

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 29.07.2024

Nánari upplýsingar veitir

Hanna Björg Henrysdóttir, hannabhe@landspitali.is

Sími: 825-9383

Harpa Dís Birgisdóttir, harpadis@landspitali.is

Sími: 620-2857

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Geislafræðingur óskast á geislameðferðardeild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

15.07.2024

Umsóknarfrestur

29.07.2024