Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri geðheilsuteymis Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.07.2024
Umsóknarfrestur
14.08.2024
Teymisstjóri geðheilsuteymis Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Við auglýsum eftir teymisstjóra við geðheilsuteymi HSS. Um er að ræða 100% framtíðarstarf. Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Geðheilsuteymi sinnir einstaklingum með alvarleg geðræn vandamál, sem þurfa á fjölþættri þjónustu að halda. Í geðheilsuteymi starfa geðlæknir, geðhjúkrunarfræðingur, sálfræðingar og félagsráðgjafi. Teymisstjóri kemur til með að vera málastjóri þjónustuþega og hefur því það hlutverk að halda utan um þjónustu við notanda, setja upp meðferðaráætlun og hafa yfirsýn með þörfum hans varðandi stuðning og miðlar því til annarra starfsmanna teymisins.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við leggjum áherslu á að taka vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umbótavinna í þverfaglegs geðheilsuteymi, stefnumótun, mótun verkferla og starfsáætlana
Yfirumsjón með þörfum þjónustuþegans og tryggja samfellu í þjónustu innan teymisins
Ráðgefandi hlutverk og stuðningur fyrir starfsmenn teymisins
Klínísk vinna í teyminu
Ráðgjöf og fræðsla til starfsmanna teymisins og starfsfólks sálfélagslegrar þjónustu
Skipuleggja og veita þjónustu sem þörf er á hverju sinni
Samvinna við starfsfólk heilsugæslustöðva, þjónustustöðva, geðsviðs Landspítala og annarra stofnana
Hæfniskröfur
Heilbrigðismenntun og starfsleyfi frá Embætti Landlæknis
Reynsla af vinnu í þverfaglegu teymi
Reynsla af vinnu í geðendurhæfingu er kostur
Reynsla af uppbyggingu og þróun nýrrar þjónustu er kostur
Reynsla af vinnu í heilsugæslu er kostur
Hæfni og áhugi á teymis- og verkefnavinnu
Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Íslenskukunátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í að byggja upp nýtt teymi sem sinnir samfélagsgeðþjónustu, þá er þetta spennandi tækifæri. Unnið er eftir hugmyndafræði valdeflingar þar sem einstaklingsmiðuð þjónusta ýtir undir styrkleika og bjargráð notanda.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum, umsögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir geta gilt í sex mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2024
Nánari upplýsingar veitir
Kjartan Jónas Kjartansson, kjartan.j.kjartansson@hss.is
Fjölnir Freyr Guðmundsson, fjolnir.f.gudmundsson@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Teymisstjóri geðheilsuteymis Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.07.2024
Umsóknarfrestur
14.08.2024