Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Lífeindafræðingar á rannsóknarstofu Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

12.07.2024

Umsóknarfrestur

06.08.2024

Lífeindafræðingar á rannsóknarstofu Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Viltu slást í hópinn og taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?

Fram undan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást hópinn.

Óskum eftir að ráða í tvær stöður lífeindafræðinga á rannsóknarstofu HSS í Reykjanesbæ. Um er að ræða 80-100% starf í vaktavinnu.

Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við leggjum okkur fram um að taka vel á móti nýju fólki og veita góða og einstaklingshæfða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Á rannsóknarstofu eru framkvæmdar rannsóknir í blóðmeinafræði, klínískri lífefnafræði og sýklafræði. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga. Lífeindafræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi í lífeindafræði (Biomedical Scientist)

  • Faglegur metnaður

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Mjög góð kunnátta í íslensku og ensku bæði í töluðu og rituðu máli

  • Hlýtt og jákvætt viðmót

  • Starfsreynsla er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Karen Rúnarsdóttir, karen.runarsdottir@hss.is

Sími: 422-0500

Sóley Ragna Ragnarsdóttir, soley.r.ragnarsdottir@hss.is

Sími: 422-0500

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Lífeindafræðingar á rannsóknarstofu Heilbrigðisstofnun Suðurnesja

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

12.07.2024

Umsóknarfrestur

06.08.2024