Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á sjúkradeild

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

11.07.2024

Umsóknarfrestur

12.08.2024

Hjúkrunarfræðingar á sjúkradeild

Viltu slást í hópinn og taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2027.

Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingum til að slást í hópinn okkar. Sjúkradeildin er fjölbreytt og vel útbúin lyflækningadeild og eru störfin bæði spennandi og krefjandi. Um er að ræða 40% til 100% störf eftir samkomulagi, í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

Hjúkrunarfræðingar vinna á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.

Þeir starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og vandvirkni

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Hlýtt og jákvætt viðmót

  • Starfsreynsla er kostur

  • Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 40-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Bryndís Sævarsdóttir, bryndis.saevarsdottir@hss.is

Sími: 4220500

Ása Hrund Sigurjónsdóttir, asa.h.sigurjonsdottir@hss.is

Sími: 4220500

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á sjúkradeild

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

40-100%

Starf skráð

11.07.2024

Umsóknarfrestur

12.08.2024