Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir lausar 2 stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna í almennri löggæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.07.2024

Umsóknarfrestur

15.08.2024

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir lausar 2 stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna í almennri löggæslu

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu leitar eftir metnaðarfullum og framsýnum leiðtogum í stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna í almennri löggæslu. Um er að ræða spennandi, krefjandi og fjölbreytt störf sem heyrir undir aðstoðarlögreglustjóra löggæslusviðs. Önnur staðan er með setningu með skipun í huga að reynslutíma loknum, hin er tímabundin til tveggja ára. Vinsamlegast tilgreinið um hvora stöðuna sótt er um.

Löggæslusvið embættis sinnir almennri löggæslu en undir sviðið heyra lögreglustöðvar embættisins auk landamæradeildar, aðgerðardeildar og umferðardeildar. Lögreglustöðvar embættisins eru fjórar og dreifast yfir allt starfssvæðið. Markmið stöðvanna er að færa lögreglu eins nálægt sínu nær umhverfi og kostur er enda leggur embættið áherslu á að þekkja samfélagið og skynja hvaða þjónustu það þarfnast.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem er til staðar fyrir öll alltaf. Megin áhersla er lögð á jafnrétti, starfsánægju, heilbrigðan starfsanda, traust og gagnsæi í samskiptum og að starfsfólk búi yfir þekkingu og hæfni til að takast á við fjölbreytileg verkefni. Starfsfólk embættisins er um 430 á fjórum megin starfsstöðvum.

Gildi embættis lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu eru TRAUST, FAGMENNSKA og ÖRYGGI.

Umsækjandi skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum frá Háskólanum á Akureyri sem jafngildir a.m.k. 120 stöðluðum námseiningum, þ.m.t. starfsnámi á vegum lögreglunnar og hafa starfað sem lögreglumaður í að minnsta kosti 5 ár að prófi loknu, sbr. 3 mgr. 14. gr. reglugerðar nr. 1051/2006 um starfsstig innan lögreglu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í samræmi við 6. gr. reglugerð 1051/2006 um starfstig innan lögreglu, þ. á m. stjórn og ábyrgð á deild og tilteknum verkefnum sem þarfnast sérstakrar þekkingar og að eftirlit með reglum og fyrirmælum sé fylgt. Í starfinu felst meðal annars:

  • Stjórn og ábyrgð á einni af lögreglustöðvunum á höfuðborgarsvæðinu

  • Dagleg stjórnun lögregluliðs í samráði við aðstoðarlögreglustjóra löggæslusviðs

  • Umsjón með tilteknum verkefnum þ.m.t. rannsókn mála og aðstoð við saksókn

  • Eftirlit með því að reglum og fyrirmælum sé framfylgt og að fjárhagslegur rekstur sé innan fjárheimilda

  • Starfsmannamál í samráði við aðstoðarlögreglustjóra löggæslusviðs og mannauðsstjóra þ.m.t. gæta þess að starfsmannastefnu og viðeigandi lögum sé framfylgt, tryggja mönnun og meta þörf fyrir fræðslu og menntun starfsfólks

  • Fylgjast með þróun og nýjungum á sviði löggæslu og taka þátt í að móta verklag og verkferla og stefnumótun

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu uppfylla skilyrði 4. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996 en aðrar hæfniskröfur eru auk þess:

  • Yfirgripsmikil þekking og reynsla af starfsemi lögreglu

  • Þekking og reynsla af almennri löggæslu

  • Góð þekking á SÁBF kerfinu og reynsla af vinnu með almannavarnaáætlanir

  • Þekking og reynsla af rannsóknum sakamála

  • Farsæl reynsla af stjórnun og mannauðsmálum innan lögreglu

  • Reynsla og þekking af umbótastarfi, rýni og umbótum verkferla

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum

  • Leiðtogahæfni, sjálfstæði í starfi, sveigjanleiki og gott álagsþol

  • Brennandi áhugi á umbótastarfi og á að efla starfsfólk í störfum sínum

  • Skipulagshæfileikar og nákvæmni í vinnubrögðum

  • Góð þekking á landskerfum lögreglu og staðgóð almenn tölvukunnátta

  • Gott vald á íslensku og ensku og hæfni til að miðla upplýsingum í rituðu og töluðu máli

Þess er vænst að umsækjandi hafi reynslu af störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið, auk afrita af prófskírteinum.

Við ráðningar hjá LRH er tekið mið af jafnréttisáætlun embættisins.

Vakin er athygli á því að engan má ráða til starfa hjá lögreglu sem hlotið hefur fangelsisdóm fyrir refsiverðan verknað sem framinn var eftir hann varð fullra 18 ára eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu sbr. 28. gr. a. lögreglulaga nr. 90/1996.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.

Sækja skal um stöðurnar með rafrænum hætti á vef starfatorgs, www.starfatorg.is.

Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um setningu hefur verið tekin.

Umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar á lausum störfum, sem settar eru samkvæmt heimild í 3. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ásgeir Þór Ásgeirsson, asgeir.thor@lrh.is

Sími: 444-1000

Eygló Huld Jónsdóttir, eyglo.huld@lrh.is

Sími: 444-1000

Þjónustuaðili

Lögreglu­stjórinn á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu auglýsir lausar 2 stöður aðstoðaryfirlögregluþjóna í almennri löggæslu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

15.07.2024

Umsóknarfrestur

15.08.2024