Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.07.2024

Umsóknarfrestur

12.08.2024

Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu

Viltu slást í hópinn og taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar?

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) veitir íbúum Suðurnesja fyrsta- og annars stigs heilbrigðisþjónustu. Á HSS eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrasvið og hjúkrunarsvið. Framundan er víðtæk uppbygging á stofnuninni, endurskoðun á þjónustuferlum sem og stefnu stofnunarinnar byggðri á Heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Óskum eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa og vera í hópi fagaðila og styrkja öfluga teymisvinnu sem bætir þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunnar.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.

Helstu verkefni og ábyrgð

Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á teymisvinnu og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt og hlýtt viðmót

  • Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.

  • Starfsreynsla er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.

Starfsstöð er í Reykjanesbæ. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Andrea Klara Hauksdóttir, andrea.k.hauksdottir@hss.is

Sími: 4220500

Alma María Rögnvaldsdóttir, alma.m.rognvaldsdottir@hss.is

Sími: 4220500

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Suður­nesja

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

09.07.2024

Umsóknarfrestur

12.08.2024