Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur - Heilsubrú

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

12.07.2024

Umsóknarfrestur

06.08.2024

Sálfræðingur - Heilsubrú

Heilsubrú leitar að metnaðarfullum sálfræðing í 60-100% tímabundið starf. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september nk. eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Við leitum að sálfræðingi sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu og miðlægum hópúrræðum innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðins.

Heilsubrú er miðlæg starfseining innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Hlutverk starfseiningarinnar er að bjóða upp á fjölbreytt heilsutengd úrræði á landsvísu í takt við þarfir notenda hverju sinni. Heilsubrú þróar jafnframt og sinnir sérhæfðum úrræðum við sértækum vanda til stuðnings starfsemi heilsugæslunnar og styður við starfsfólk heilsugæslu. Starfsemin byggir á góðri teymisvinnu og samstarfi við aðrar starfstöðvar innan HH.

Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is)

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri

  • Þróun meðferðarúrræða með áherslu á hópmeðferðir

  • Ráðgjöf og fræðsla er tengist andlegri heilsu og vellíðan skjólstæðinga

  • Námskeiðahald fyrir skjólstæðinga og/eða aðstandendur

  • Beiting gagnreyndra meðferða og ráðgjöf s.s. hugrænni atferlismeðferð

  • Notkun sálfræðilegra prófa

  • Klínísk verkefni og vinna í samræmi við klínískar leiðbeiningar og fyrirmyndar vinnubrögð

  • Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu

  • Samstarf við aðrar heilbrigðis- og þjónustustofnanir varðandi úrræði skjólstæðinga, þegar við á

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði

  • 5 ára starfsreynsla æskileg

  • Færni og reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna

  • Þekking og reynsla af áfallameðferð kostur

  • Reynsla af námskeiðahaldi

  • Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi

  • Góð samskiptahæfni og sveigjanleiki í samskiptum nauðsynleg

  • Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslum

  • Góð færni og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Sólrún Ólína Sigurðardóttir, solrun.olina.sigurdardottir@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla á höfuð­borg­ar­svæðinu

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur - Heilsubrú

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

12.07.2024

Umsóknarfrestur

06.08.2024