![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6GDzLOjPmYDFHOOFAuyxGX/169f5e27b1e6e2267124e202600c1f6d/hsnlogo.png)
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
HSN Húsavík, hjúkrunarfræðingar.
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
03.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024
HSN Húsavík, hjúkrunarfræðingar.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Húsavík óskar eftir hjúkrunarfræðingum á hjúkrunardeildir. Ráðningartími frá 1. ágúst 2024 eða eftir samkomulagi.
Til greina kemur að ráða inn til skemmri tíma, einstaka helgar eða vikur.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.
Hæfniskröfur
Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi
Íslenskukunnátta skilyrði
Samviskusemi, stundvísi og metnaður í starfi
Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Við Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Húsavík starfar samhentur hópur starfsfólks sem leggur sitt að mörkum til að þjónusta samfélagið á sem bestan hátt. Vinnustaðurinn leggur áherslu á að vera vinalegur, styðja starfsfólk sitt og mæta því á fjölbreyttan hátt.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorgi.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn fylgi ferilskrá á íslensku. Með umsókn fylgi einnig afrit af starfsleyfi og prófskírteinum.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Áslaug Halldórsdóttir, aslaug.halldorsdottir@hsn.is
Sími: 860 7736
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6GDzLOjPmYDFHOOFAuyxGX/169f5e27b1e6e2267124e202600c1f6d/hsnlogo.png)
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
HSN Húsavík, hjúkrunarfræðingar.
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
03.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024