Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi á hjúkrunardeild
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024
Iðjuþjálfi á hjúkrunardeild
Heilbrigðisstofnun Suðurlands auglýsir lausa stöðu iðjuþjálfa í allt að 100% starf.
Um er að ræða nýtt og spennandi starf fyrir metnaðarfullan iðjuþjálfa í endurhæfingarteymi HSU. Um er að ræða áhugaverða vinnu sem aðallega fer fram á hjúkrunardeildum HSU. Hjúkrunardeildir HSU eru staðsettar á Selfossi og Vestmannaeyjum. Aðalstarfstöð Iðjuþjálfa er á Selfossi.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands veitir heilsugæslu-, sjúkrahúss- og öldrunarþjónustu ásamt því að annast sjúkraflutninga. Þjónustusvæðið nær frá Þorlákshöfn í vestri til Hafnar í austri.
Hlutverk HSU er að móta, þróa og útfæra heilbrigðisþjónustu í umdæminu og tryggja íbúum Suðurlands og öðrum þjónustuþegum jafnan aðgang að bestu heilbrigðisþjónustu sem völ er á hverju sinni.
Þjónustumarkmið HSU byggja á gildum okkar um fagmennsku, virðingu og samvinnu. Velferð og þarfir þjónustuþega eru okkar leiðarljós.
Helstu verkefni og ábyrgð
Tekur þátt í greiningu, endurhæfingu og þjálfunaráætlun
Þjónusta við íbúa
Ráðgjöf og umsóknir á hjálpartækjum
Skráning og skýrslugerð
Fræðsla fyrir íbúa og starfsfólk
Fræðsla og ráðgjöf á aðrar starfstöðvar HSU
Þátttaka í þverfaglegum teymum
Iðjuþjálfi vinnur í miklu samstarfi við sjúkraþjálfara HSU
Ýmis fjölþætt verkefni og þátttaka í umbótastarfi
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem iðjuþjálfi
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Mikill áhugi á starfi með öldruðum
Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs
Jákvætt viðmót og sveigjanleiki í samskiptum
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni
Íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsfeilsskrá.
Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og afrit af starfsleyfi.
Upphafsdagur ráðningar er samkomulag.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Gunnhildur A Vilhjálmsdóttir, gunnhildur.a.vilhjalmsdottir@hsu.is
Sími: 4322000
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi á hjúkrunardeild
Staðsetning
Suðurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024