![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild - BUGL
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
03.07.2024
Umsóknarfrestur
24.07.2024
Þroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild - BUGL
Þroskaþjálfi óskast til starfa á barna- og unglingageðdeild Landspítala. Um er að ræða annars vegar starf á legudeild og hins vegar á göngudeild og ráðið verður í störfin eftir samkomulagi. Á göngudeild er unnið í dagvinnu en á legudeild er vinnufyrirkomulag vaktavinna en einnig er möguleiki á að vinna dagvinnu eingöngu.
BUGL samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, legudeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Unnið er í þverfaglegum teymum og er mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi.Á BUGL starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á styttingu biðtíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar í þverfaglegu teymi að umönnun, greiningu og meðferð barna með geðrænan vanda.
Tekur þátt í gerð, framkvæmd og endurmati einstaklingshæfðra meðferðaráætlana í samvinnu við fjölskyldur.
Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu.
Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis.
Hæfniskröfur
Starfsleyfi sem þroskaþjálfi
Reynsla af meðferðar-, umönnunar- eða uppeldisstörfum
Brennandi áhugi á veitingu geðheilbrigðisþjónustu við börn og fjölskyldur
Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu
Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og frumkvæði
Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar
Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli
Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar
Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Þroskaþjálfafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Starfsmerkingar:: Heilbrigðisþjónusta, Þroskaþjálfi
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Tinna Guðjónsdóttir, tinnagud@landspitali.is
Sími: 543-4300
Halla Skúladóttir, hallask@landspitali.is
Sími: 543-4300
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Þroskaþjálfi á barna- og unglingageðdeild - BUGL
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
03.07.2024
Umsóknarfrestur
24.07.2024