![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ertu sérfræðingur í svæfingahjúkrun?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
03.07.2024
Umsóknarfrestur
08.08.2024
Ertu sérfræðingur í svæfingahjúkrun?
Laust er til umsóknar starf sérfræðings í svæfingahjúkrun á svæfingadeildum Landspítala með starfsstöð í Fossvogi. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi.
Sérfræðingur í svæfingahjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala. Auk klínískra starfa vinnur sérfræðingur í svæfingahjúkrun að framþróun hjúkrunar á svæfingadeildum Landspítala, gæða- og umbótaverkefnum, ráðgjöf, kennslu og fræðslustarfsemi til starfsfólks og nemenda og tekur þátt í akademískri vinnu með þátttöku í rannsóknastarfi. Starfið felur jafnframt í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við skjólstæðinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.
Á svæfingadeildum Landspítala starfar samhent þverfaglegt teymi sem þjónar sjúklingum sem þurfa á svæfingatengdri þjónustu að halda bæði á skurðstofum og utan þeirra. Sérsvið svæfinga fylgir hraðri framþróun og fylgst er vel með nýjungum á alþjóðlegum vettvangi.
Sérfræðingur í hjúkrun vinnur sjálfstætt á sérsviði svæfingahjúkrunar skv. reglugerð . reglugerð nr. 512/2013 og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart stofnun og næsta yfirmanni.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun hjúkrunar og þjónustu við sjúklinga innan sérgreinar
Frumkvæði að gæðaumbótum og innleiðingu nýrra verkferla
Þátttaka í rannsóknarstarfi
Er leiðandi í faglegri starfsþróun innan svæfingadeilda
Kennsla og fræðsla til starfsfólks, nemenda í grunn- og framhaldsnámi í heilbrigðisgreinum sem og sérnámi í svæfingahjúkrun
Ráðgjöf til sjúklinga og heilbrigðisstarfsmanna
Frumkvæði að þverfaglegri samvinnu innan og utan skurðstofa
Aðkoma að verkefnum er lúta undirbúningi að sameiningu svæfingadeilda fyrir nýjan Landspítala
Hæfniskröfur
Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun
Íslenskt sérfræðileyfi í svæfingahjúkrun
Að lágmarki fimm ára starfsreynsla í hjúkrun
Leiðtoga- og samskiptahæfni
Reynsla af árangursríkri teymisvinnu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, sérfræðingur í hjúkrun
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.08.2024
Nánari upplýsingar veitir
Sigurlaug Gísladóttir, sigurlgi@landspitali.is
Sími: 825-3779
Ólafur Guðbjörn Skúlason, olafursk@landspitali.is
Sími: 824-5118
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6PHUWW83ZRNXU0ydxQsipf/6f460fab1a36daf4c6faf4e604b4741a/Logo.png)
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ertu sérfræðingur í svæfingahjúkrun?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
03.07.2024
Umsóknarfrestur
08.08.2024