Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Upplýsingatæknistjóri
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
12.08.2024
Upplýsingatæknistjóri
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) auglýsir eftir upplýsingatæknistjóra.
HSS er miðpunktur heilbrigðisþjónustu samfélagsins á Reykjanesi þar sem miklir umbrotatímar hafa staðið yfir. Mikilvægt er að tryggja öryggi þjónustunnar og viðbragð stofnunarinnar við yfirstandandi náttúruvá sem og mikla vexti sem hefur orðið á þjónustuþörf vegna örrar fjölgunar íbúa í umdæmi stofnunarinnar.
Upplýsingatæknistjóri stýrir starfsemi upplýsingatæknideildar HSS og er í forystu um skilvirka upplýsingastjórnun, hagnýtingu heilbrigðis- og upplýsingatækni og stöðugum umbótum tengdum upplýsingaöryggi.
Starfið felur í sér umsjón og eftirfylgni með frammistöðu deildarinnar í heild, einstakra ábyrgðasviða hennar sem og frammistöðu starfsfólks og birgja sem sinna þjónustu tengdri upplýsingatækni.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í uppbyggingu stofnunarinnar. Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Sem upplýsingatæknistjóri munt þú meðal annars:
Vinna náið með stjórnendum og starfsfólki HSS
Gera upplýsingatækniþjónustu HSS sýnilega og aðgengilega
Móta og framfylgja framtíðarsýn og stefnu HSS um hagfellda hagnýtingu upplýsingatækninnar og upplýsingaöryggi
Leiða framþróun og stýra breytingum á UT innviðum, kerfum og annarri UT högun stofnunarinnar
Vera í forsvari fyrir HSS í öllu samráði og samvinnu stofnunarinnar á sviði upplýsingatækni og upplýsingastjórnunar
Bera ábyrgð á gerð og réttum efndum samninga á sviði upplýsingatækni
Tryggja snarpa og skilvirka þjónustu við notendur í tölvuumhverfi stofnunarinnar
Stuðla að og styðja við framþróun á vefum og öðrum miðlum stofnunarinnar
Vinna að framtíðarþróun, sjálfvirknivæðingu og samþættingu í miðlun upplýsinga og samskiptum HSS við aðrar stofnanir
Skilgreina markmið deildarinnar og gera reglulega grein fyrir frammistöðu og árangri til framkvæmdastjórnar
Hæfniskröfur
Viðamikil reynsla af störfum við upplýsingatæknirekstur og þjónustu
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi
Reynsla af þjónustu- og gæðastjórnun skv. forskrift, t.d. ISO27001, ITIL
Skipulagshæfni
Reynsla af verkefnastýringu upplýsingatækniverkefna
Reynsla af gerð ferla, verklagsreglna og lausna
Geta til að tjá sig í riti og ræðu á íslensku og ensku
Viðeigandi menntun sem umsækjandi getur hagnýtt í upplýsingatæknirekstri og þjónustu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.08.2024
Nánari upplýsingar veitir
Kjartan Kjartansson, kjartan.kjartansson@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Upplýsingatæknistjóri
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
12.08.2024