Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknarlögreglumenn á löggæslusviði - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.06.2024
Umsóknarfrestur
25.07.2024
Rannsóknarlögreglumenn á löggæslusviði - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Við embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum eru lausar til umsóknar stöður rannsóknarlögreglumanna á löggæslusviði. Gert er ráð fyrir að lögreglustjóri setji í stöðurnar frá og með 1. september 2024 með skipun í huga að sex mánaða reynslutíma loknum.
Hjá embættinu starfa um 200 manns. Verkefnin eru fjölbreytt og krefjandi. Í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum er Keflavíkurflugvöllur sem gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu almannaflugs á Íslandi og tengir landið við Evrópu og Norður-Ameríku. Í fjölmennu liði lögreglunnar á Suðurnesjum býr mikill þróttur og góð þekking.
Helstu verkefni og ábyrgð
Kveðið er á um réttindi og skyldur lögreglumanna í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. Almennar upplýsingar um verksvið og ábyrgð rannsóknarlögreglumanns má finna í 9. gr. reglugerðar nr. 1051/2006, um starfsstig innan lögreglunnar.
Starfið felst meðal annars í rannsókn og frágangi mála í almennri deild. Þá munu rannsóknarlögreglumenn í almennri deild styðja við flugstöðvardeildina og vinna að hluta til með rannsóknarlögreglumönnum í rannsóknardeild og til að mynda kemur til greina að ganga bakvaktir hjá rannsóknardeild.
Hæfniskröfur
Umsækjendur skulu hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum sem jafngildir að minnsta kosti 120 stöðluðum námseiningum, þar með talið starfsnámi á vegum lögreglunnar. Þá skulu umsækjendur hafa starfað sem lögreglumenn í að minnsta kosti 2 ár frá því að hafa lokið prófi frá Lögregluskóla ríkisins eða diplómaprófi í lögreglufræðum.
Góð þekking á lögreglukerfinu (LÖKE) er nauðsynleg. Áhugi á rannsóknum mála er mikilvægur og reynsla af lögreglustarfi og rannsóknum mála er kostur. Aukin menntun og önnur reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
Færni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki, góðir skipulagshæfileikar, nákvæm og traust vinnubrögð og hæfni til að vinna undir álagi eru góðir eiginleikar.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband lögreglumanna hafa gert.
Starfið er dagvinna með möguleika á bakvöktum.
Athygli umsækjenda er vakin á heimild til að skoða sakaferil umsækjenda um starf í lögreglu en samkvæmt 28. gr. a lögreglulaga nr. 90/1996 er mælt fyrir um að engan megi skipa, setja eða ráða til starfa hjá lögreglu sem hefur gerst sekur um refsivert athæfi sem telja má svívirðilegt að almenningsáliti eða sýnt af sér háttsemi sem getur rýrt það traust sem starfsmenn lögreglu verða almennt að njóta. Til þess að staðreyna þetta er lögreglu heimilt að afla upplýsinga úr sakaskrá og málaskrám lögreglu.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um starfið með því að smella á hlekkinn hér að neðan og láta ferilskrá og kynningarbréf fylgja með sem viðhengi.
Einungis er tekið við umsóknum með þessum hætti. Umsóknir sem berast eftir að umsóknarfresti lýkur verða ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Varðandi persónuverndarákvæði gagnvart umsækjendum, sjá vef lögreglunnar: https://www.logreglan.is/wp-content/uploads/2020/04/Persónuverndaryfirlýsing-til-umsækjenda.pdf
Auglýsing þessi gildir í 6 mánuði, sbr. ákvæði 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 25.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Bjarney Sólveig Annelsdóttir, baddy@logreglan.is
Sími: 4442200
Nanna Lind Stefánsdóttir, nls01@logreglan.is
Sími: 4442200
Þjónustuaðili
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Upplýsingar um starf
Starf
Rannsóknarlögreglumenn á löggæslusviði - Lögreglustjórinn á Suðurnesjum
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
28.06.2024
Umsóknarfrestur
25.07.2024