Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á taugalækningadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
28.06.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024
Hjúkrunarfræðingur á taugalækningadeild
Við sækjumst eftir metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum til að starfa með okkur á taugalækningadeild í Fossvogi. Í boði er einstakt tækifæri til að sérhæfa sig í hjúkrun sjúklinga með taugasjúkdóma auk þess að vera hluti af uppbyggingu slagþjónustu á Íslandi.
Á taugalækningadeild er mikil þverfagleg teymisvinna og fjölmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi. Boðið verður uppá einstaklingshæfða aðlögun, undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.
Unnið er í vaktavinnu og er ráðið í starfið frá 1. september 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er samkomulag.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð, samkvæmt starfslýsingu
Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur Landspítala
Fylgjast með nýjungum í faginu
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og samskiptahæfileikar
Sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni og geta til að vinna í teymi
Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Sjöfn Reynisdóttir, ragnreyn@landspitali.is
Sími: 825-5156
Hafdís Jónsdóttir, hafdisj@landspitali.is
Sími: 849-6744
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á taugalækningadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
28.06.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024