Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri fræðslu og samfélagsmála
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.06.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024
Verkefnastjóri fræðslu og samfélagsmála
Þjóðleikhúsið á erindi við okkur öll og endurspeglar fjölbreytileika samfélagsins í gegnum hlustun, samtal, miðlun og fræðslu. Óskað er eftir drífandi og reynslumiklum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á starfsemi leikhúsa og getu til að leiða á árangursríkan hátt fræðslu- og samfélagsverkefni leikhússins í samræmi við nýja stefnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þróun og framkvæmd verkefna og viðburða á sviði fjölbreytileika, sjálfbærni og barnamenningar. Umsjón með samfélagstengdum verkefnum
Skólastjóri og aðalkennari nýs leikhússkóla Þjóðleikhússins
Gerð námsefnis, skipulagning og framkvæmd náms og námskeiða
Verkefnastjórnun starfsþjálfunar við húsið
Verkefnaval og þátttaka í listrænni stefnumótun Þjóðleikhússins
Hæfniskröfur
Nám á háskólastigi sem leikari, leikstjóri eða sviðshöfundur er skilyrði
Háskólanám í listkennslufræðum, meistaragráða mikill kostur
Reynsla af stjórnun, verkefnastjórnun eða leikstjórn í atvinnuleikhúsi er skilyrði
Kennslureynsla er skilyrði og reynsla af uppbyggingu náms/námskeiða mikill kostur
Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
Jákvæðni, lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Drifkraftur og metnaður til að ná árangri
Hæfni í tjáningu í ræðu og riti, á íslensku og ensku
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert
Umsóknir og fylgiskjöl skulu berast rafrænt í gegnum starfatorg.is, ráðningarkerfi ríkisins
Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi 1. september 2024
Fólk er hvatt til að sækja um starfið óháð kyni og uppruna
Næsti yfirmaður er þjóðleikhússtjóri
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir því hvernig hún/hán/hann uppfyllir hæfnikröfur
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila frá fyrri störfum
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Magnús Geir Þórðarson, magnus.geir.thordarson@leikhusid.is
Þjónustuaðili
Þjóðleikhúsið
Upplýsingar um starf
Starf
Verkefnastjóri fræðslu og samfélagsmála
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.06.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024