Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri barnadeildar og Rjóðurs á Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.07.2024

Umsóknarfrestur

06.08.2024

Hjúkrunardeildarstjóri barnadeildar og Rjóðurs á Barnaspítala Hringsins

Starf hjúkrunardeildarstjóra barnadeildar og Rjóðurs er laust til umsóknar. Við leitum að kraftmiklum stjórnanda til að sameina, leiða og efla starfsemi þessara tveggja deilda og byggja upp sterka þverfaglega liðsheild og menningu sálræns öryggis. Starfið er unnið í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, framkvæmdastjóra, annað samstarfsfólk.

Starfsfólk Barnaspítala Hringsins sinnir breiðum skjólstæðingahópi frá fæðingu að 18 ára aldri og fjölskyldum þeirra. Stefnan er að veita fjölskyldumiðaða þjónustu þar sem öryggi, fagmennska og umhyggja er höfð að leiðarljósi og sjónarmið þjónustuþega eru nýtt til umbóta.

Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi: faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur Kvenna- og barnasviðs.

Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. október 2024 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni

  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna á deildunum

  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildanna

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur

  • Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur

  • Þekking á og farsæl reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi

  • Færni í stjórnunarhlutverki, þ.e. faglegri ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslegri ábyrgð

  • Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar

  • Frumkvæði, áræðni, drifkraftur og stefnumótandi hugsun

  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í mæltu og rituðu máli

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfi

  • Ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, deildarstjóri, stjórnunarstarf

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2024

Nánari upplýsingar veitir

Dögg Hauksdóttir, dogghauk@landspitali.is

Sími: 543-1000

Hrönn Harðardóttir, hronhard@landspitali.is

Sími: 897-5600

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunardeildarstjóri barnadeildar og Rjóðurs á Barnaspítala Hringsins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

19.07.2024

Umsóknarfrestur

06.08.2024