Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Innviða­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.06.2024

Umsóknarfrestur

19.07.2024

Ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins

Áður auglýstur umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 19. júlí n.k.

Auglýst er laust til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins.

Verkefni ráðuneytisins ná til fjölmargra sviða þjóðfélagsins og varða meðal annars samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál, grunnskrár, húsnæðis- og mannvirkjamál og skipulagsmál. Undir ráðuneytið heyra Byggðastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, Samgöngustofa, Skipulagsstofnun, Vegagerðin og Þjóðskrá Íslands.

Hlutverk ráðuneytisins er að vera leiðandi í stefnumótun og áætlanagerð, hafa eftirlit með stofnunum og eigum ríkisins, meðferð stjórnsýslukæra og rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins. Ráðuneytið tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi, leggur áherslu á víðtækt samráð og upplýsingagjöf og vandaða vinnu við gerð laga og reglugerða.

Helstu verkefni og ábyrgð

Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn innviðaráðherra. Ráðherra setur ráðuneytisstjóra erindisbréf þar sem kveðið er á um starfssvið og starfsskyldur, sbr. 18. gr. laga nr. 115/2011 um Stjórnarráð Íslands. Starfssvið og starfsskyldur ráðuneytisstjóra eru víðtækar og ber ráðuneytisstjóri m.a. fjárhagslega og faglega ábyrgð gagnvart ráðherra á starfsemi ráðuneytis. Þá ber ráðuneytisstjóra að veita ráðherra upplýsingar og ráðgjöf þannig að ráðherra geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og stefnumótun og sé vel upplýst varðandi þau mál sem unnið er að. Ráðuneytisstjóra ber einnig að stuðla að framgangi og árangri löggjafar á málefnasviðum ráðuneytisins og að afgreiðsla mála á hverjum tíma sé fagleg. Þá ber ráðuneytisstjóra að samhæfa stefnumótun á öllum málefnasviðum ráðuneytisins, stuðla að samhentri stjórnsýslu og samræma stefnu og aðgerðir ráðuneytisins við vinnu annarra ráðuneyta þegar málefni og málefnasvið skarast.

Hæfniskröfur

Ráðuneytisstjóri þarf að vera framsýnn og skapandi í hugsun auk þess að búa yfir ríkri hæfni í samskiptum og samvinnu og hafa metnað til að taka þátt í að leiða Ísland til aukinnar hagsældar. Ráðuneytisstjóri þarf að vinna af heilindum að innleiðingu stefnu stjórnvalda hverju sinni, með hag samfélagsins að leiðarljósi.

Gerð er krafa um háskólamenntun sem nýtist í starfi, meistaragráða er skilyrði ásamt þekkingu og reynslu á verkefnasviði innviðaráðuneytisins. Áhersla er lögð á stjórnunarreynslu og færni í mannlegum samskiptum. Jafnframt er gerð krafa um góða tungumálakunnáttu auk hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Mikilvægt er að viðkomandi hafi þekkingu og reynslu á sviði opinberrar stjórnsýslu.

Frekari upplýsingar um starfið

Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt 3. mgr. 16. gr. laga nr. 115/2011.

Innviðaráðherra skipar í embættið frá og með 1. september 2024 til fimm ára í senn.

Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi með upplýsingum um ástæðu umsóknar og þann árangur sem viðkomandi hefur náð í starfi og telur að nýtist embættinu. Hæfnisnefnd metur hæfni umsækjenda samkvæmt reglum nr. 393/2012. Umsókn skal skila rafrænt á starfatorg.is.

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.

Upplýsingar um starfsemi ráðuneytisins er að finna á <www.irn.is>

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.07.2024

Nánari upplýsingar veitir

Sigurborg Kristín Stefánsdóttir, sigurborg.stefansdottir@irn.is

Þjónustuaðili

Innviða­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

14.06.2024

Umsóknarfrestur

19.07.2024