Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar á geðgjörgæslu 32C
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024
Sjúkraliðar á geðgjörgæslu 32C
Sjúkraliðar óskast til starfa með okkur á geðgjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut. Við leitum að metnaðarfullum sjúkraliðum sem hafa áhuga á að starfa með fólki með bráðan geðrænan vanda. Á geðgjörgæslu 32C er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndafræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu meðferðarteymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Spennandi vettvangur fyrir sjúkraliða sem hafa áhuga á að dýpka þekkingu sína í geðhjúkrun. Boðið verður upp á einstaklingshæfða aðlögun. Upphafstími ráðningar er frá 10. ágúst 2024 eða skv. nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hjúkrun, umönnun og stuðningur við einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
Virk þátttaka í teymisvinnu
Stuðlar að öryggi sjúklinga og starfsfólks með því að framfylgja verklagi og vera virkur þátttakandi í varnarteymi geðsviðs
Hefur umsjón með ýmsum störfum sem snúa að daglegum rekstri deildar
Stuðlar að góðum starfsanda
Hæfniskröfur
Íslenskt sjúkraliðaleyfi
Áhugi á hjúkrun fólks með geðræn einkenni
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Framúrskarandi samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Reynsla af stuðningi við fólk með geðrænar áskoranir er kostur
Íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sjúkraliði, hjúkrun
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir, johathor@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliðar á geðgjörgæslu 32C
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024