Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á geðgjörgæslu 32C
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á geðgjörgæslu 32C
Laus eru til umsóknar störf ráðgjafa/ stuðningsfulltrúa á geðgjörgæslu. Á einingunni er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni.
Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Góður starfsandi ríkir á deild sem einkennist af samvinnu og góðum liðsanda. Unnið er á breytilegum dag-, kvöld- og næturvöktum og aðra hverja helgi. Starfið býður uppá tækifæri til þess að kynnast hugmyndafræði um geðgjörgæslu og fá að taka þátt í öflugu umbótastarfi á deild. Ráðið er í starfið frá og með 10. ágúst 2024 eða skv. samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Virk þátttaka í hjúkrun og meðferð inniliggjandi sjúklinga
Umönnun fólks með bráð geðræn einkenni
Virk þátttaka í varnarteymi geðsviðs og stuðningur við öryggi sjúklinga og starfsfólks
Þátttaka í þverfaglegu samstarfi
Samskipti, hvatning, leiðbeiningar og víðtækur stuðningur
Ýmis fjölþætt þátttaka í umbótastarfi
Hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi, að lágmarki stúdentspróf
Viðbótarmenntun eða reynsla af vinnu með einstaklingum með geðrænan vanda er æskileg
Góð samstarfshæfni, færni í samskiptum, samkennd, skapandi hugsun og frumkvæði
Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Stundvísi og áreiðanleiki
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi, starfsmaður, almenn störf, nemi
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Guðmunda Þórisdóttir, johathor@landspitali.is
Snæfríður Jóhannesdóttir, snaefrij@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á geðgjörgæslu 32C
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
02.07.2024
Umsóknarfrestur
15.07.2024