Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri upplýsingatæknideildar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

21.05.2024

Deildarstjóri upplýsingatæknideildar

Samgöngustofa leitar að deildarstjóra upplýsingatæknideildar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni starfsins er stjórnun hugbúnaðar og kerfisreksturs innan stofnunar. Starfið felur í sér ábyrgð á rekstri hugbúnaðarlausna, kerfisreksturs og stafrænnar þróunar, gagnvart innri og ytri aðilum. Virk þátttaka í þróun stafrænnar þjónustu stofnunarinnar og öflug samvinna við starfsfólk Samgöngustofu. Einnig felst starfið í áætlunargerð sem og stefnumótun innan stofnunarinnar. Starfshlutfall er 100% og felur í sér krefjandi áskoranir til þess að byggja upp upplýsingatækniumhverfi Samgöngustofu.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði. Gerð er krafa um BA/BS gráðu og er framhaldsnám kostur.

  • Reynsla af verkefnastýringu sem og innleiðingu upplýsingakerfa er nauðsynleg.

  • Leiðtogahæfni og haldgóð stjórnunarreynsla.

  • Þekking á þróun hugbúnaðarlausna og kerfisrekstri æskileg.

  • Greiningarhæfni og sterk ferla- og umbótahugsun.

  • Lipurð í mannlegum samskiptum.

  • Nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Í boði er spennandi starf hjá metnaðarfullri stofnun í alþjóðlegu umhverfi. Við bjóðum uppá góða starfsaðstöðu og frábæra vinnufélaga.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Öllum umsóknum skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf. Í ráðningarferlinu verður óskað eftir að umsækjendur skili sakavottorði. Hafi umsækjandi verið fundinn sekur um refsiverða háttsemi getur það orðið til þess að viðkomandi telst ekki hæfur til að gegna starfi hjá stofnuninni. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði ef staða losnar á ný. Samgöngustofa áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Samgöngustofa hvetur fólk óháð kyni, þjóðernisuppruna og fötlun til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ólöf Friðriksdóttir, oloff@samgongustofa.is

Sími: 4806000

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Deildarstjóri upplýsingatæknideildar

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.05.2024

Umsóknarfrestur

21.05.2024