Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Klínísk lífefnfræðideild/rannsóknakjarni Landspítala auglýsir eftir öflugum liðsauka
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.05.2024
Umsóknarfrestur
21.05.2024
Klínísk lífefnfræðideild/rannsóknakjarni Landspítala auglýsir eftir öflugum liðsauka
Auglýst er eftir öflugum liðsauka í krefjandi verkefni á klínískri lífefnafræðideild/rannsóknakjarna Landspítala. Við leitum eftir metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir þekkingu og reynslu af rannsóknum með HPLC og LC/MS/MS mælitækni. Um er að ræða dagvinnu og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Á rannsóknakjarna fara fram greiningar, rannsóknir, ráðgjöf og kennsla heilbrigðisstétta í klíniskri lífefna- og blóðmeinafræði. Á einingunni starfa um 150 manns í þverfaglegu teymi. Lögð er rík áhersla á jákvæðni, fagmennsku og virðingu gagnvart vinnustaðnum og samstarfsfólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna með HPLC og LC-MS/ MS tæki
Meðhöndlun og úrvinnsla rannsóknarsýna
Upplýsingagjöf, kennsla og þjálfun
Virk þátttaka í gæðastarfi
Vinna við upplýsingakerfi deildarinnar
Stuðla að góðri þjónustu
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi á heilbrigðissviði, s.s. lífeinda-, lyfja- eða líffræðingur eða menntun á háskólastigi sem nýtist í starfi s.s. efna- eða lífefnafræði
Góð samskiptahæfni og fagleg framkoma
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Frumkvæði, yfirsýn og skipulagsfærni
Reynsla af vísindastörfum æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyf, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífeindafræðingur,lyfjafræðingur, líffræðingur, heilbrigðisvísindi
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.05.2024
Nánari upplýsingar veitir
Ísleifur Ólafsson, isleifur@landspitali.is
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Klínísk lífefnfræðideild/rannsóknakjarni Landspítala auglýsir eftir öflugum liðsauka
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.05.2024
Umsóknarfrestur
21.05.2024