Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar óskast á bæklunarskurðdeild B5 í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

30.04.2024

Umsóknarfrestur

17.05.2024

Hjúkrunarfræðingar óskast á bæklunarskurðdeild B5 í Fossvogi

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á bæklunarskurðdeild B5 Fossvogi. Við bjóðum jafnt velkomna hjúkrunarfræðinga sem búa yfir þekkingu og reynslu sem og nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga. Í boði er einstaklingsbundin aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Störfin eru laus 1. júní 2024 eða eftir nánara samkomulagi. Vinnufyrirkomulag og starfshlutfall samkomulag.

Deildin er bráðadeild og sinnir bráðatilfellum er tengjast stoðkerfi vegna slysa. Auk þess sinnir deildin sjúklingum sem leggjast inn vegna ýmissa aðgerða á stoðkerfi. s.s. eftir gerfiliðaaðgerðir. Þar starfa um 65 einstaklingar í þverfaglegu teymi og frábær starfsandi ríkir á deildinni sem einkennist af vinnugleði og metnaði og markvisst er unnið að umbótum og framþróun.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við skjólstæðing og bera ábyrgð á meðferð

  • Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í teymisvinnu

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Áhugi á að starfa í krefjandi og skemmtilegu umhverfi

  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar

  • Áhugi og færni til að vinna í teymi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, teymisvinna

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Ingibjörg Hauksdóttir, ingahauk@landspitali.is

Sími: 824-5958

Dagrún Ása Ólafsdóttir, dagruna@landspitali.is

Sími: 866-3866

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingar óskast á bæklunarskurðdeild B5 í Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

30.04.2024

Umsóknarfrestur

17.05.2024