Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Matvæla­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Eftirlitsdýralæknir í Suðausturumdæmi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.04.2024

Umsóknarfrestur

03.06.2024

Eftirlitsdýralæknir í Suðausturumdæmi

Viltu taka þátt í að tryggja velferð dýra á Íslandi?

Matvælastofnun óskar eftir því að ráða eftirlitsdýralækni til starfa í Suðausturumdæmi með aðsetur á Selfossi. Um er að ræða 100% starf og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Matvælastofnun er nútímaleg og framsækin þjónustustofnun sem gætir hagsmuna neytenda og málleysingja. Megináhersla er lögð á starfsánægju og samskipti ásamt því að vera öflugt og lifandi þekkingarsamfélag.

Við stöndum vörð um heilsu manna, dýra og plantna og aukum þannig velferð og verðmætasköpun í þágu þjóðarinnar. Gildi Matvælastofnunar eru FAGMENNSKA, GAGNSÆI OG TRAUST.

Helstu verkefni og ábyrgð

Eftirlitsdýralæknir sinnir fyrst og fremst eftirliti skv. gildandi lögum og reglugerðum á sviði matvæla, dýraheilbrigðis og dýravelferðar. Einnig sinnir hann heilbrigðiseftirliti í sláturhúsum, samskiptum við opinberar stofnanir ásamt umsjón með tilteknum málaflokkum á verksviði umdæmisskrifstofunnar.

Hæfniskröfur

  • Dýralæknismenntun og gilt dýralæknaleyfi á Íslandi

  • Æskilegt er að umsækjandi hafi starfað við opinbert eftirlit

  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Nákvæmni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er skilyrði

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Bílpróf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Dýralæknafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá, prófskírteini og kynningarbréf.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Vakin er athygli á því að umsóknir gilda í sex mánuði nema umsækjandi ákveði annað.

Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.06.2024

Nánari upplýsingar veitir

Jarle Reiersen, jarle.reiersen@mast.is

Sími: 530-4800

Þjónustuaðili

Matvæla­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Eftirlitsdýralæknir í Suðausturumdæmi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.04.2024

Umsóknarfrestur

03.06.2024