Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðsmaður Neskaupstaður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
26.04.2024
Umsóknarfrestur
08.05.2024
Ráðsmaður Neskaupstaður
Heilbrigðisstofnun Austurlands auglýsir stöðu ráðsmanns í Neskaupstaðlausa til umsóknar. Um er að ræða 100% starf (eða skv. samkomulagi) og er staðan laus strax eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ráðsmaður sinnir viðhaldi á eignum og tækjum HSA í Neskaupstað og annars staðar í stofnuninni eftir þörfum. Jafnframt sinnir hann öðrum verkum sem til falla í daglegum rekstri HSA.
Hæfniskröfur
Iðnmenntun er æskileg eða reynsla af viðhaldsvinnu. Viðkomandi þarf að vera laghentur, samviskusamur, geta unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði í störfum og haft góða samskiptahæfni. Almenn ökuréttindi eru skilyrði. Íslensku- og tölvukunnátta æskileg.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er -100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.05.2024
Nánari upplýsingar veitir
Kjartan Ólafur Einarsson, kjartan.einarsson@hsa.is
Þórarna Gró Friðjónsdóttir, thorarna.g.fridjonsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Ráðsmaður Neskaupstaður
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
-100%
Starf skráð
26.04.2024
Umsóknarfrestur
08.05.2024