Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

26.04.2024

Umsóknarfrestur

31.05.2024

Sjúkraliði á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma

Göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma óskar eftir að ráða sjúkraliða í fjölbreytt starf á góðum vinnustað. Við leitum eftir sjúkraliða sem þrífst á spennandi verkefnum, sýnir þjónustulund, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Á deildinni starfar öflugt teymi heilbrigðisstarfsmanna með sterka framtíðarsýn á þjónustu við sjúklinga þar sem unnið er eftir gagnreyndri þekkingu. Áhersla er á tækninýjungar og fjarþjónustu. Við leggjum metnað í að veita góða aðlögun með reyndum sjúkraliðum og hjúkrunarfræðingum deildarinnar.

Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Deildin sinnir göngudeildarþjónustu vegna gigtarsjúkdóma annars vegar og innkirtlasjúkdóma hins vegar. Einnig er starfrækt þar miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umjón og undirbúningur fyrir göngudeildir

  • Virk þátttaka í meðferð sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Undirbúningur og eftirlit með skjólstæðingum deildarinnar

  • Umsjón og ábyrgð á umhverfi deildar, birgðum og búnaði

  • Virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu deildarinnar

  • Símsvörun og vöktun rafrænna kerfa

  • Virk þátttaka í teymisvinnu

  • Önnur verkefni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða

  • Þekking, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Góð tölvufærni

  • Góð tungumálakunnátta er kostur

  • Faglegur metnaður

  • Áhugi á teymisvinnu

  • Jákvætt lífsviðhorf og framúrskarandi samskiptahæfileikar

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Erna Jóna Sigmundsdóttir, ernajs@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á göngudeild innkirtla- og gigtarsjúkdóma

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

26.04.2024

Umsóknarfrestur

31.05.2024