Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild A4 Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

26.04.2024

Umsóknarfrestur

17.05.2024

Hjúkrunarfræðingur á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild A4 Fossvogi

Landspítali auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild A4 í Fossvogi. Um vaktavinnu er að ræða og er upphaf starfs og starfshlutfall samkomlag, en starfið er laust frá 1. júlí næstkomandi.

Við bjóðum nýútskrifaðan hjúkrunarfræðing jafnt sem reynslubolta velkominn í hópinn. Hjá okkur ríkir einstaklega góður starfsandi sem einkennist af vinnugleði og metnaði. Áhersla er lögð á framþróun og símenntun starfsfólks og er öllum nýliðum veitt góð einstaklingshæfð aðlögun.

HNE-, lýta- og æðaskurðdeild, A4, er 18 rúma bráðadeild og þar er rekin þriggja sérgreina skurðdeild. Á deildinni er sjúklingum sinnt eftir háls-, nef og eyrnaaðgerðir, lýtaaðgerðir, æðaskurðaðgerðir og einnig er þar starfrækt sérhæfð sáradeild. A4 er eina brunadeildin á landinu og sinnir öllum alvarlegri brunaslysum. Hjúkrunarfræðingar á deildinni hafa sérhæft sig í sárum og sárameðferð. Sjúklingahópurinn er því mjög fjölbreyttur og enginn dagur er eins á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild.

Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarárs Landspítala.

Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er nú 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð

  • Skipuleggja og veita fræðslu til sjúklinga og aðstandenda

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Fylgjast með nýjungum innan hjúkrunar

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar

  • Hæfni og geta til að vinna í teymum

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Öllum umsóknum verður svarað.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.05.2024

Nánari upplýsingar veitir

Magney Ósk Bragadóttir, magneyob@landspitali.is

Sími: 617 4406

Berglind Ólöf Sigurvinsdóttir, bergolof@landspitali.is

Sími: 543 7354

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á HNE-, lýta- og æðaskurðdeild A4 Fossvogi

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

26.04.2024

Umsóknarfrestur

17.05.2024