Þjónustuaðili
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Upplýsingar um starf
Starf
Spænskumælandi brúarsmiður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.06.2024
Umsóknarfrestur
31.07.2024
Spænskumælandi brúarsmiður
Við leitum að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi með þekkingu og reynslu af íslensku skólastarfi og menningu spænskumælandi þjóða. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af því að vinna með börnum og foreldrum og þekkingu á því hvað einkennir samfélag og skólastarf á Íslandi og meðal spænskumælandi þjóða. Viðkomandi verður hluti af samstarfsteymi Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og Miðju máls og læsis sem sameinast 1. ágúst næstkomandi í tengslum við þróunarverkefnið Menntun, Móttaka, Menning (MEMM) en verkefnið er samstarfsverkefni Mennta- og barnamálaráðuneytis, Miðstöðvar menntunar og Reykjavíkurborgar. Markmið MEMM er að stuðla að inngildingu og virkri þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn með því að koma á samræmdu verklagi um móttöku og menntun þeirra á landsvísu í leikskólum, grunnskólum, framhaldsskólum og frístundastarfi, þróa og tryggja öfluga ráðgjöf, námsgögn og verkfæri, sem og stuðning til lausnar flóknari aðstæðum.
Brúarsmiðir hafa það hlutverk að styðja foreldra af erlendum uppruna varðandi skólagöngu barna þeirra. Meginmarkmiðið er að byggja brú á milli barna og foreldra með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn annars vegar og hins vegar skólaskrifstofa, kennara og starfsfólks leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og í frístundastarfi.
Ef þú finnur þig í faglegu og skemmtilegu vinnuumhverfi þar sem starfsfólk brennur fyrir umbótum, þróun og þjónustu, ert arabískumælandi, hefur reynslu af íslensku skólastarfi og góða þekkingu á íslenskri tungu, menningu og skólastarfi þá gæti þetta verið starf fyrir þig. Hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu starfar samhentur hópur sem á það sameiginlegt að brenna fyrir því hlutverki að aðstoða skólasamfélagið við það mikilvæga verkefni að skapa umhverfi þar sem öll börn fá tækifæri til þess að njóta sín og blómstra. Nú leitum við að öflugri viðbót í þennan góða hóp.
Framundan eru spennandi tímar við að þróa nýja hugsun og nálgun hjá nýrri stofnun. Við hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu leggjum upp úr faglegu og skemmtilegu vinnuumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita ráðgjöf og fræðslu til foreldra af erlendum uppruna um íslenskt skólakerfi, um nám barna þeirra í íslenskum skólum og hlutverk skólaforeldra á Íslandi
Veita foreldrum af erlendum uppruna upplýsingar og ráðgjöf um virkt tvítyngi/fjöltyngi, íslensku sem annað mál og eflingu móðurmálsins
Veita ráðgjöf og stuðning til skólaskrifstofa, kennara og starfsfólks leik- grunn- og framhaldsskóla og í frístundastarfi um millimenningarfræðslu og samstarf við foreldra af erlendum uppruna
Taka þátt í skipulagningu og framkvæmd starfsþróunar fyrir kennara og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi.
Þátttaka í námsefnisgerð og þróun ferla og verkfæra
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Vinna að stefnu og tryggja stöðugar umbætur í takt við þróun og þarfir skólasamfélagsins
Vinna í þéttu samtali og samstarfi við hagaðila, s.s. skóla og sveitarfélög og annarra
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði uppeldis- og kennslufræða æskilegt
Mjög góð kunnátta í íslensku, C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Mjög góð kunnátta í spænsku, C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Reynsla af starfi í leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og/eða frístundastarfi
Þekking á íslenskri menningu og samfélagi sem og menningu spænskumælandi þjóða.
Þekking á starfi leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs á Íslandi og meðal spænskumælandi þjóða
Drifkraftur, frumkvæði og metnaður til að ná árangri
Víðsýni og lausnamiðuð hugsun
Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulund
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí nk. og verður ráðið í stöðuna frá 1. október nk. eða eftir nánara samkomulagi. Ráðið er í starfið til eins árs með möguleika á framlengingu.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
1. Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla og þekking
2. Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi til að gegna starfinu
3. Afrit af prófskírteinum og starfsleyfi ef við á.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.07.2024
Nánari upplýsingar veitir
Katrín Friðriksdóttir, katrin@midstodmenntunar.is
Sími: 897-9940
Dröfn Rafnsdóttir, drofn.rafnsdottir@reykjavik.is
Sími: 821-0960
Þjónustuaðili
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
Upplýsingar um starf
Starf
Spænskumælandi brúarsmiður
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.06.2024
Umsóknarfrestur
31.07.2024