Fara beint í efnið

Sala sumarhúsa

Frístundahús Verkmenntaskólans á Akureyri til sölu

Sumarhús VMA 2024

Tilboð óskast í sumarhús til flutnings, staðsett á lóð Verkmenntaskólans á Akureyri og byggt af nemendum í húsasmíði, rafvirkjun og pípulögnum. Húsið er ekki fullklárað og selst í því ástandi sem það er í á lokatilboðsdegi.

Um er að ræða timburhús, 64 m2 að grunnfleti með 8,3 m2 millilofti að auki þar sem getur verið svefnaðstaða og/eða geymsla.

Að utan er húsið klætt hvítmálaðri bandsagaðri vatnsklæðningu úr furu frá Húsasmiðjunni og járngráu bárujárni (7011 litur, Bára 18). Þakkantar eru klæddir 2 mm þykku áli. Þak er bárujárnsklætt (Aluzink).

Innréttingar eru spónlagðar með askspón frá Efnissölunni, eldhúsinnrétting, baðherbergisinnrétting og 3 fataskápar. Loft eru klædd með hvítum loftaþiljum. Veggir eru klæddir 12 mm walls2paint spónaplötum. Baðherbergi er klætt Fibotrespo baðplötum frá Þ.Þorgrímsson. Innihurðir fylgja (ekki uppsettar), hurðir, slaglistar og gerefti eru spónlögð með aski.

Húsið er án endanlegra gólfefna. Gert er ráð fyrir gólfhitakerfi sem tengt yrði í lagnaskáp utan við aðalhurð. Ekki hefur verið lagður gólfhiti, eða sett upp tengikista. Rafmagn er langt komið, nánari upplýsingar má finna hér.

Húsið er einangrað með 150 mm steinull í gólfi og útveggjum, þak er einangrað með 245 mm steinull. Gluggar eru frá Hyrna/Húsheild og eru allir með tvöföldu TopN+ gleri, gasfylltu.

Húsið selst í því ástandi sem það er í á tilboðsdegi.

Ekki verður tekið við tilboðum lægri en 20.000.000.00 ISK en Verkmenntaskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.

Nánari upplýsingar eru á heimasíðu VMA og á facebook síðu byggingadeildar og frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma 464 0300, hjá brautarstjóra byggingadeildar í síma 8966731/helgi.v.hardarson@vma.is og Ríkiskaup í síma 530 1400.

Húsið er tilbúið til flutnings og þarf kaupandi að fjarlægja það eigi síðar en 15. ágúst 2024.

Tilboðum skal skilað á vef Ríkiskaupa eigi síðar en kl. 11:30, mánudaginn 21. júní n.k.

Smelltu hér til að fylla út Kauptilboð.