Umboðsmaður skuldara - Ársskýrsla 2019
Líkt og síðustu ár er áhersla lögð á skýra og aðgengilega framsetningu á verkefnum embættisins og tölulegum upplýsingum tengdum þeim.
Skýrslan er sett upp með einföldum hætti þannig að lesandinn getur valið strax þá kafla sem hann hefur helst áhuga á að kynna sér.
Í þeim köflum þar sem fjallað er um einstaka úrræði embættisins er jafnframt hægt að nálgast ítarlega samantekt á tölfræði varðandi hvert úrræði fyrir sig.
Er það von embættisins að framsetning þessi muni auðvelda enn aðgengi að skýrum upplýsingum um starfsemi embættisins.
Árið 2019 var eins og fyrri ár nokkuð viðburðaríkt hjá embættinu.
Líkt og kom fram í ársskýrslu árið 2018 vakti embættið fyrst athygli á vaxandi vanda vegna skyndilána á því ári. Undirrituð hefur lýst yfir áhyggjum sínum af þeim hættumerkjum sem hafa verið á lofti varðandi fjárhagsvandræði ungs fólks og bent á að taka þurfi á vandanum með aukinni fræðslu og skýrara regluverki gagnvart lánveitendum. Embættið átti fulltrúa í starfshópi um endurskoðun á starfsumhverfi smálánafyrirtækja, sem var skipaður af iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Starfshópurinn skilaði niðurstöðum sínum í janúar 2019.
Í lok árs 2019 var samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um neytendalán nr. 33/2013. Með breytingunni var m.a. kveðið á um skráningarskyldu lánveitenda og lánamiðlara sem ekki eru jafnframt fjármálafyrirtæki. Þá var kveðið á skýrar á um lagaskil og lækkun á leyfilegri árlegri hlutfallstölu kostnaðar úr 50% í 35 %. Embættið telur að með breytingunum hafi verið stigin góð skref í átt til betri réttarverndar fyrir einstaklinga á lánamarkaði. Þó þarf meira að koma til og hefur embættið lagt áherslu á að fræðsla og aðgengi að upplýsingum sé lykilatriði í því að einstaklingar geti tekið upplýstar ákvarðanir í fjármálum.
Embættið hefur í ljósi þessa ekki slegið slöku við þegar kemur að fræðslu um fjármál. Eitt af leiðarljósum embættisins í fræðslumálum hefur verið samstarf við opinbera aðila og samtök sem eiga í samskiptum við einstaklinga sem kunna að vera í fjárhagserfiðleikum og hefur það gefið góða raun.
Mikilvægt framfaraskref var stigið í þjónustu embættisins á árinu 2019 þegar ný vefsíða embættisins leit dagsins ljós. Með henni var aðgengi að hlutlausri fræðslu um fjármál aukið til muna auk þess sem framsetning á upplýsingum um starfsemi og þjónustu embættisins var útfært á nýjan hátt. Með vefsíðunni var aðgengi einstaklinga einnig aukið þannig að einstaklingar geta nú óskað beint eftir símtali við ráðgjafa. Það er von undirritaðrar að vefsíða embættisins vaxi og dafni á næstu árum og þjóni jafnt umsækjendum og öðrum sem leita sér upplýsinga um störf embættisins og fjármál einstaklinga.
Á árinu var 2019 var einnig tekið upp nýtt fyrirkomulag varðandi umsóknir til embættisins. Í stað þess að umsækjandi velji í umsókn sinni milli úrræða hjá embættinu, þ.e. ráðgjöf, greiðsluaðlögun eða fjárhagsaðstoð vegna skiptakostnaðar, er núna sótt um aðstoð vegna fjárhagsvanda. Starfsmenn embættisins greina svo og meta í samráði við umsækjanda hvaða úrræði henti best til úrlausnar á vanda viðkomandi. Með þessu leitast embættið við að bæta þjónustu við umsækjendur og að þjónustan verði markvissari og biðtími eftir úrlausn minnki.
Verkefni embættisins eru fjölmörg og í stöðugri þróun. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru. Starfsfólk embættisins býr yfir mikilli þekkingu, reynslu og ekki síst aðlögunarhæfni og langar mig að lokum að færa starfsfólki bestu þakkir fyrir vel unnin störf.
Embættið er þjónustustofnun þar sem einstaklingar geta fengið endurgjaldslausa aðstoð sérfræðinga við úrlausn á fjárhagsvanda.
Þjónusta UMS er ókeypis og rafræn
Helstu verkefni :
Ráðgjöf
Fyrirspurnir og símaráðgjöf
Fræðsla um fjármál heimilanna
Gerð framfærsluviðmiðs
Embættið fer einnig með framkvæmd eftirfarandi úrræða:
Framkvæmd greiðsluaðlögunar
Veita fjárhagsaðstoð vegna skiptakostnaðar
Markmið umboðsmanns skuldara
Veita ávallt sem besta þjónustu og er lögð áhersla á að leita stöðugt leiða til að bæta hana.
Embættið heldur úti öflugri símaráðgjöf þar sem hægt er að leita nánari upplýsinga um þá þjónustu sem stendur til boða og fá svör við einföldum spurningum og ráðleggingar um hvert sé hægt að leita eftir frekari svörum eða þjónustu.
Þá er einnig hægt að senda fyrirspurnir til embættisins i gegnum vef t.d. óska eftir símtali eða fá skrifleg svör við einstaka fyrirspurnum.
Nýtt umsóknarferli
Á árinu 2019 var tekið upp nýtt fyrirkomulag varðandi umsóknir til embættisins. Í stað þess að umsækjandi velji í umsókn sinni milli úrræða hjá embættinu, ráðgjöf, greiðsluaðlögun eða fjárhagsaðstoð vegna skiptakostnaðar er núna sótt um aðstoð vegna fjárhagsvanda.
Starfsmenn embættisins greina svo og meta í samráði við umsækjanda hvaða úrræði henti best til úrlausnar á vanda viðkomandi. Með þessu leitast embættið við að bæta þjónustu við umsækjendur og að þjónustan verði markvissari og biðtími eftir úrlausn minnki.
Hjá embættinu starfa einstaklingar með fjölbreytta menntun og mikla reynslu og er það markmið embættisins að leggja rækt við þá þekkingu sem myndast hefur.
Embættið leitast við að bjóða starfsfólki sínu upp á sveigjanlegan vinnutíma með það að markmiði að auðvelda starfsfólki að ná jafnvægi milli vinnu og einkalífs án þess þó að það komið niður á þjónustu þeirri sem embættið veitir.
Embættið hefur verið lánsamt í gegnum árin með gott starfsólk. Meirihluti starfsmanna hefur starfað frá stofnun embættisins og störfuðu jafnvel áður hjá fyrirrennara embættisins sem var Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna (meðalstarfsaldur tekur mið af því). Hjá embættinu hefur því orðið til mikil þekking á því sem varðar fjármál heimilanna.
Í upphafi árs 2019 voru starfsmenn 18 í 17 stöðugildum en í árslok hafði starfsmönnum fækkað í 17 starfsmenn í 15,8 stöðugildum.
Umboðsmaður skuldara styrkir starfsmenn sína til að sinna heilsu sinni og stunda líkamsrækt. Á árinu 2019 var heilsustyrkur greiddur út til 13 starfsmanna, þar af fengu 10 starfsmenn fullan styrk og 3 hlutastyrk. Samtals úthlutun var 423.000 kr.
Einn starfsmaður var með árs samgöngusamning og fékk samgöngustyrk 35.000 kr.
Í lok árs 2019
17 starfsmenn
10 ára meðalstarfsaldur
45.9 ár meðallífaldur starfsmanna
Samkvæmt lögum um umboðsmann skuldara ber embættinu að útbúa framfærsluviðmið og uppfæra þau reglulega.
Framfærsluviðmið umboðsmanns skuldara eru ætluð sem viðmið þegar leitað er lausna á skuldavanda með úrræðum embættisins. Viðmiðin eru ætluð til styttri tíma en viðmið ýmissa annarra, til dæmis dæmigerð viðmið velferðarráðuneytisins. Viðmið embættisins taka mið af raunútgjöldum íslenskra heimila skv. útgjaldarannsókn Hagstofu Íslands um neysluútgjöld í slenskra heimila.
Umsækjendur þurfa sjálfir að tiltaka í umsókn sinni ýmsan kostnað við framfærslu, svo sem vegna hita, rafmagns, dagvistunar barna, fasteignagjalda og er þeim bætt við annan kostnað til að reikna út heildarframfærslukostnað fjölskyldunnar. Viðmiðin taka þannig tillit til aðstæðna hjá hverjum og einum umsækjanda.
Meðal hlutverka umboðsmanns skuldara er að veita alhliða ráðgjöf og fræðslu um fjármál heimilanna.
Embættið hefur lagt rækt við þetta verkefni með ýmsum hætti, svo sem með upplýsingum á heimasíðu og á facebook síðu embættisins og með samskiptum við fjölmiðla um vanda skuldara og um þau úrræði sem í boði eru.
Embættið hefur lagt mikla áherslu á fræðslustarf og forvarnir á síðustu árum og hefur gott samstarf myndast t.a.m við aðila sem þjónusta einstaklinga sem kunna að þurfa á aðstoð vegna fjárhagsvanda að halda. Á árinu 2019 voru haldnir 20 fræðslufundir. Embættið hefur á átt gott samstarf við þjónustumiðstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og boðið upp á fræðslu fyrir félagsráðgjafa og aðra starfsmenn. Þá hefur embættið einnig verið þátttakandi í hinum ýmsu verkefnum og boðið upp á fræðslu fyrir þátttakendur og fagaðila.
Ný vefsíða
Í mars 2019 var lögð lokahönd á vinnu við nýja vefsíðu embættisins og hún sett í loftið 25. mars.
Vefsíðan boðar nokkuð breyttar árherslur en auk aðgengilegra og gagnlegra upplýsinga um úrræði embættisins er þar að finna ýmsan ganglegan fróðleik um fjármál einstaklinga.
Þá er nú hægt að senda inn beiðni af vefsíðunni og panta símatal, er það von embættisins að sá möguleiki auki enn á aðgengi einstaklinga að þjónustu embættisins.
Yngsti hópurinn
Þann 25. mars 2019 var haldinn morgunfundur á vegum umboðsmanns skuldara og samtaka fjármálafyrirtækja, fundurinn bar yfirskriftina: Lán unga fólksins, ungt fólk og lánastarfsemi í stafrænum heimi.
Tilurð fundarins var m.a. sú fjölgun sem hefur orðið hefur í hópi einstaklinga á aldrinum 18-29 ára sem leita sér aðstoðar vegna fjárhagsvanda hjá embættinu.
Ráðstefnan var mjög vel sótt en á annað hundrað einstaklinga mættu til að hlíða á framsögur og pallborðsumræður.
Í ársskýrslu embættisins fyrir árið 2018 var gerð nokkuð ítarleg greining á þessum hóp en þar kom fram að á árinu 2018 var þessi hópur 27,5% allra umsækjenda en í lok árs 2019 var sami hópur orðinn 35% allra umsækjenda um greiðsluaðlögun.
Það sem einkenndi hópinn að auki var að 77% einstaklinga í þessum hóp voru með það sem embættið hefur skilgreint sem skyndilán. Samsetning hópsins á árinu 2019 er með svipuðu móti og var á árinu 2018.
Fyrsta skref í að leita formlega aðstoðar hjá umboðsmanni skuldara er umsókn um aðstoð vegna fjárhagsvanda
Á árinu 2019 var tekið upp nýtt fyrirkomulag varðandi umsóknir til embættisins. Í stað þess að umsækjandi velji í umsókn sinni milli úrræða hjá embættinu, ráðgjöf, greiðsluaðlögun eða fjárhagsaðstoð vegna skiptakostnaðar er nú ein umsókn, umsókn um aðstoð vegna fjárhagsvanda. Sérfræðingar embættisins greina svo og meta í samráði við umsækjanda hvaða úrræði henti best til úrlausnar á vanda viðkomandi. Með þessu leitast embættið við að bæta þjónustu við umsækjendur með skilvirkari greiningu og styttri biðtíma eftir úrlausn.
Heildarfjöldi umsókna sem embættinu barst á árinu 2019
1125 Umsóknir um aðstoð vegna fjárhagsvanda
Hér má sjá í hvaða farveg umsóknir sem bárust á árinu 2019 fóru eftir greiningu.
418 Ráðgjöf
348 Greiðsluaðlögun
120 Fjárhagsaðstoð ti greiðslu skiptakostnaðar
Umsóknir um aðstoð vegna fjárhagsvanda í tölum
Kyn umsækjanda | Fjöldi |
---|---|
Karl | 551 |
Kona | 574 |
Aldur umsækjenda | Fjöldi |
---|---|
18 til 29 ára | 389 |
30 til 39 ára | 343 |
40 til 49 ára | 222 |
50 til 59 ára | 126 |
60 til 69 ára | 33 |
70 ára og eldri | 12 |
Fjölskyldustærð | Fjöldi |
---|---|
Einstaklingur | 603 |
Einstaklingur með barn eða börn | 320 |
Hjón eða sambúðarfólk | 63 |
Hjón eða sambúðarfólk með barn eða börn | 139 |
Búsetuform umsækjenda | Fjöldi |
---|---|
Leiga | 584 |
Húsnæðislaus | 100 |
Eigin fasteign | 102 |
Búseturéttur | 6 |
Félagsleg leiga | 130 |
Í foreldrahúsum | 106 |
Atvinnustaða umsækjenda | Fjöldi |
---|---|
Í atvinnu | 38 |
Í námi | 28 |
Örorka eða lífeyrir | 429 |
Sjálfstætt starfandi | 18 |
Atvinnulaus | 261 |
Heimavinnandi | 4 |
Menntun umsækjenda | Fjöldi |
---|---|
Grunnskólapróf | 663 |
Iðnmenntun | 134 |
Háskólapróf | 160 |
Stúdentspróf | 168 |
Eitt af hlutverkum umboðsmanns skuldara er að veita einstaklingum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum ókeypis ráðgjöf.
Ráðgjöf hefst eftir að umsókn um aðstoð vegna fjárhagsvanda hefur borist og greining hefur farið fram í samráði við umsækjanda.
Í ráðgjöf felst meðal annars að gert er greiðsluerfiðleikamat með það að markmiði að öðlast heildarsýn á fjármálin og leita leiða til lausnar.
Með ráðgjöf hjá umboðsmanni skuldara er leitast við að leysa úr fjárhagserfiðleikum áður en vandinn er orðinn slíkur að önnur úrræði, svo sem greiðsluaðlögun eða gjaldþrotaskipti, þurfi til. Í kjölfar úrvinnslu umsóknar fær umsækjandi samantekt um fjárhagsstöðu sína, greiðsluerfiðleikamat, og ef möguleiki er tillögur til úrbóta. Í sumum tilvikum aðstoða ráðgjafar umsækjendur við að leita samninga við kröfuhafa sem geta m.a. falið í sér lengingu á lánum, niðurfellingu dráttarvaxta, frystingu lána eða skuldbreytingu lána.
Ef framangreind úrræði duga ekki er umsækjendum ráðlagt að sækja um greiðsluaðlögun einstaklinga eða fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta hjá umboðsmanni skuldara.
Þegar afgreiddar umsóknir í ráðgjöf eru eru skoðaðar má sjá að skipting milli kynja er nokkuð jöfn.
Á árinu voru afgreiddar umsóknir
karla 53%
kvenna 47%
Flestar afgreiddar umsóknir voru umsóknir einstaklinga (1+0) eða 72%
418 - Heildarfjöldi umsókna í rágjöf
509 - Heildarfjöldi umsókna afgreiddur í ráðgjöf 2019
Ráðgjöf í tölum
Á árinu 2019 voru:
37% með neikvæða greiðslugetu
meðaleign 5.189.016 krónur
meðalskuld 10.821.823 krónur
Upplýsingar um umsækjendur
Kyn | Fjöldi |
---|---|
Karl | 271 |
Kona | 238 |
Aldur | Fjöldi |
---|---|
18 til 29 | 160 |
30 til 39 | 170 |
40 til 49 | 96 |
50 til 59 | 64 |
60 til 69 | 12 |
70 áa og eldri | 7 |
Fjölskyldustærð | Fjöldi |
---|---|
Einstaklingar | 364 |
Hjón og sambúðaraðilar | 24 |
Einstaklingar með börn | 104 |
Hjón og sambúðaraðilar með börn | 17 |
Búsetuform | Fjöldi |
---|---|
Búseturéttur | 2 |
Húsnæðislaus | 37 |
Eigin fasteign | 68 |
Í foreldrahúsum | 33 |
Félagsleg leiga | 55 |
Leiga | 257 |
Annað | 57 |
Atvinnustaða | Fjöldi |
---|---|
Atvinnulaus | 119 |
Í atvinnu | 205 |
Í námi | 14 |
Sjálfstætt starfandi | 11 |
Örorka eða lífeyri | 160 |
Menntunarstaða | Fjöldi |
---|---|
Háskólapróf | 76 |
Iðnmenntun | 69 |
Stúdentspróf | 77 |
Gunnskólapróf | 287 |
Tegundir skulda | Hlutfall |
---|---|
Fasteignalán | 0,3028 |
Bílalán | 0,0153 |
Önnur bankalán | 0,2062 |
Meðlag | 0,0582 |
Raðgreiðsla - Kreditkort | 0,0475 |
Námslán | 0,1059 |
Skattur, vsk og fleira | 0,1724 |
Aðrar skuldir | 0,0472 |
Yfirdráttur | 0,0444 |
Niðurstaða í ráðgjöf | Fjöldi |
---|---|
Tillaga að samningum | 192 |
Annað | 135 |
Bent að kynna sér gjaldþrotaskipti | 51 |
Mælt með fjárhagsaðstoð v.skiptak. | 31 |
Mælt með greiðslulaðlögun | 165 |
Mælt með sölu eigna | 20 |
Framkvæmd greiðsluaðlögunar skv. lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 er eitt af meginhlutverkum umboðsmanns skuldara.
Markmið laga um greiðsluaðlögun einstaklinga er að gera einstaklingum í verulegum greiðsluerfiðleikum kleift að endurskipuleggja fjármál sín og koma á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu þannig að raunhæft sé að skuldari geti staðið við skuldbindingar sínar um fyrirsjáanlega framtíð.
Vinnsla greiðsluaðlögunarmála fer að öllu leyti fram innan embættisins þar sem umsjónarmenn sinna vinnslu greiðsluaðlögunarmála frá upphafi umsóknar til loka máls.
Umsóknarkerfi embættisins er rafrænt og þurfa umsækjendur ekki að skila inn skriflegu samþykki vegna gagnaöflunar heldur er slíkt samþykki veitt rafrænt. Innskráning í umsóknina er í gegnum island.is, annað hvort með íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Vinnslu umsókna um greiðsluaðlögun einstaklinga getur lokið á þrjá vegu,með samþykki, með synjun og með því að umsækjandi sjálfur ákveður að afturkalla umsókn sína.
Fleiri en ein ástæða getur legið að baki því að umsókn um greiðsluaðlögun er synjað .
Algengasta ástæða synjunar á árinu 2019 var óljós fjárhagur umsækjanda en í 80% umsókna var óljós fjárhagur ein af synjunarástæðum.
Kærðar ákvarðanir
Ákvarðanir umboðsmanns skuldara um synjn á heimild til að leita greiðsluaðlögunar og um niðurfellingu á heimild til að leita greiðsluaðlögunar má kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála.
Á árinu 2019 voru 7 ákvarðanir um synjun kærðar, af þeim voru 5 ákvarðanir staðfestar, einni var vísað frá og í einu tilfelli var fallið frá kæru.
Umsóknir um greiðsluaðlögun árið 2019
348 umsóknir
418 afgreiddar
Þegar umsóknir um greiðsluaðlögun eru skoðaðar má sjá að konur eru í meirihluta þeirra sem sækja um greiðsluaðlögun einstaklinga.
59% konur
41% karlar
Meirihluti umsækjenda voru einstaklingar með fjölskyldumerkinguna 1+0 eða 63%
25% samþykkt
50% synjað
25% afturkallað
Greiðsluaðlögun í tölum
Á árinu 2019 voru:
44% með neikvæða greiðslugetu
Meðaleign 2.377.671 krónur
Meðalskuld 7.357.928 krónur
Upplýsingar um umsækjendur
Kyn | Fjöldi |
---|---|
Karl | 173 |
Kona | 246 |
Aldur | Fjöldi |
---|---|
18 til 29 ára | 147 |
30 til 39 ára | 136 |
40 til 49 ára | 74 |
50 til 59 ára | 43 |
60 til 69 ára | 13 |
70 ára og eldri | 5 |
Fjölskyldustærð | Fjöldi |
---|---|
Einstaklingar | 263 |
Einstaklingar með börn | 130 |
Hjón og sambúðaraðilar | 6 |
Hjón og sambúðaraðilar með börn | 19 |
Búsetuform | Fjöldi |
---|---|
Annað | 51 |
Búseturéttur | 2 |
Eigin fasteign | 19 |
Félagsleg leiga | 59 |
Húsnæðislaus | 26 |
Í foreldrahúsum | 21 |
Leiga | 240 |
Atvinnustaða | Fjöldi |
---|---|
Atvinnulaus | 92 |
Heimavinnandi | 3 |
Í atvinnu | 130 |
Í námi | 11 |
Sjálfstætt starfandi | 5 |
Örorka eða lífeyrir | 177 |
Menntunarstaða | Fjöldi |
---|---|
Grunnskólapróf | 269 |
Iðnmenntun | 37 |
Háskólapróf | 50 |
Stúdentspróf | 62 |
Tegundir skulda | Hlutfall |
---|---|
Fasteignalán | 0,168 |
Bílalán | 0,025 |
Önnur bankalán | 0,29 |
Meðlög | 0,03 |
Raðgreiðslur - Kreditkort | 0,074 |
Námslán | 0,125 |
Skattur, VSK og fleira | 0,138 |
Aðrar skuldir | 0,072 |
Yfirdráttur | 0,079 |
Ferli Greiðsluaðlögunar
Samningar til greiðsluaðlögunar
Í kjölfar þess að umsókn um greiðsluaðlögun hefur verið samþykkt er skipaður umsjónarmaður og hefst þá ferli samningagerðar.
Þegar umsjónarmaður gerir frumvarp til samnings um greiðsluaðlögun kveða lög um greiðsluaðlögun á um að frumvarpið skuli tryggja framfærslu skuldara og fjölskyldu hans og að raunhæft sé að hann muni geta staðið við skuldbindingar sínar, endurskipulagt fjármál sín og komið á jafnvægi milli skulda og greiðslugetu.
Á árinu 2019 komust á 77 samningar til greiðsluaðlögunar þá var í 63% samninga kveðið á um 100 % eftirgjöf allra samningskrafna.
Tímabil greiðsluaðlögununar í samningum á árinu 2020 var frá því að vera ekkert tímabil uppí 36 mánuði. Algengasta niðurstaða var 24 mánuðir eða í 31% samninga.
Með greiðsluaðlögun má kveða á um algera eftirgjöf einstakra krafna, hlutfallslega lækkun þeirra, gjaldfrest á þeim, skilmálabreytingar, greiðslu þeirra með hlutdeild í afborgunarfjárhæð sem greiðist með ákveðnu millibili á tilteknu tímabili, breytt form á greiðslu krafna eða allt framangreint í senn.
Hér koma ýmsir þættir til skoðunar t.d. fjárhæð skulda, fjölskyldustaða og aldur og er það hlutverk umsjónarmanns í samráði við skuldara að meta hvernig samningur sé best til þess fallinn að uppfylla skilyrði laganna sem fjallað er um hér að ofan.
Á árinu 2019 voru gerðir 77 samningar gerðir. Hlutfall kynja:
60% konur
40% karlar
Flestar afgreiddar umsóknir voru samningar einstaklinga (1+0) eða 62%
Samningar til greiðsluaðlögunar í tölum
Ár | Heildarfjöldi samninga |
---|---|
2018 | 80 |
2019 | 77 |
Ár | Meðallengd samninga |
---|---|
2018 | 14,5 |
2019 | 14,9 |
Ár | Meðal greiðslugeta |
---|---|
2018 | -22,022 |
2019 | -13,183 |
Ár | Meðal ráðstöfunartekjur |
---|---|
2018 | 294,897 |
2019 | 321,546 |
Hlutfall eftirgjafar í samningum | Fjöldi |
---|---|
0,0 | 2 |
50% | 22 |
100% | 53 |
Tegundir skulda | Hlutfall |
---|---|
Fasteignalán | 0,217 |
Bílalán | 0,0238 |
Önnur bankalán | 0,284 |
Meðlag | 0,027 |
Raðgreiðslur og kredirkort | 0,075 |
Námslán | 0,187 |
Skattur, VSK og fleira | 0,035 |
Annað | 0,062 |
Yfirdráttur | 0,0826 |
Breyting á samningi
Þegar umsjónarmaður leggur til að samningur komist á milli skuldara og kröfuhafa er markmiðið alltaf að samningurinn sé raunhæfur og til þess fallinn að leysa greiðslu- og skuldavanda skuldara. Það er þó aldrei hægt að útiloka að eitthvað komi uppá á samningstímanum sem kemur í veg fyrir að skuldari geti staðið við þann samning sem gerður var.
Ef upp koma ófyrirsjáanlegar aðstæður á samningstímanum sem veikja getu skuldara til að standa við greiðsluaðlögunarsamning sinn getur skuldari óskað eftir því við kröfuhafa að samningnum verði breytt.
Frá árinu 2013 hefur verið unnið eftir verklagi þar sem umboðsmaður skuldara annast milligöngu við kröfuhafa fyrir hönd skuldara, lögin gera þó ráð fyrir að skuldari sinni þessu hlutverki sjálfur. Reynslan hefur sýnt að það er verulega íþyngjandi fyrir skuldara að sinna þessu hlutverki sjálfur og embættið hefur reynst betur í stakk búið til að ná fram sátt um breyttan samning í takt við getu skuldara.
Á árinu 2019 voru:
16 breytingarmál
11 samningum breytt
4 beiðnir afturkallaðar
1 breytingu synjað
Frá upphafi hefur breyting verið samþykkt í 76% mála
Lög um fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir skiptakostnaði vegna gjaldþrotaskipta nr. 9/2014 tóku gildi þann 1. febrúar 2014.
Úrræðið felst í að umsækjandi óskar eftir að fá greidda tryggingu fyrir skiptakostnaði vegna gjaldþrotaskipta að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Markmiðið er að gera einstaklingum sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum og hafa árangurslaust leitað annarra greiðsluvandaúrræða kleift að krefjast sjálfir skipta á búi sínu.
Helstu skilyrðin eru að umsækjandi eigi í verulegum greiðsluerfiðleikum, umsækjandi geti ekki staðið skil á tryggingu fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta og að önnur greiðsluvandaúrræði dugi ekki til að leysa greiðsluvanda umsækjanda. Sambærileg skilyrði er einnig að finna í lögum um greiðsluaðlögun einstaklinga nr. 101/2010 sem umsækjandi þarf að uppfylla til þess að fá heimild til að leita greiðsluaðlögunar.
Fleiri en ein ástæða geta legið að baki því að umsókn um fjárhagsaðstoð til greiðslu skiptakostnaðar er synjað.
Á árinu 2019 var algengasta ástæða þess að umsókn var hafnað sú að umsækjandi uppfyllti ekki skilyrði a- liðar, 1. mgr. 3. gr. um að vera í verulegum greiðsluerfiðleikum.
Á árinu 2019 óskuðu 32 einstaklingar sem höfðu fengið samþykki fyrir fjárhagsaðstoð til greiðslu tryggingar fyrir kostnaði vegna gjaldþrotaskipta eftir því að bú þeirra yrðu tekin til gjaldþrotaskipta.
Við upphaf árs 2020 höfðu 67 einstaklingar fengið samþykki fyrir fjárhagsaðstoð en ekki óskað eftir að bú þeirra yrði tekið til gjalþrotaskipta.
Umsóknir um fjárhagsaðstoð til greiðslu skiptakostnaðar árið 2019 í tölum
Umsækjendur voru:
56% karlar
44% konur
Flestar afgreiddar umsóknir voru umsóknir einstaklinga (1+0) eða 71%
153 - Heildarfjöldi umsókna um fjárhagsaðstoð vegna skiptakostnaðar
32 umsóknir samþykktar
74 umsóknum synjað
47 umsóknir afturkallaðar
Aðrar upplýsingar:
47% með neikvæða greiðslugetu
meðaleign 295.935 krónur
meðalskuld 10.830.901 krónur
Tölulegar upplýsingar skiptakostnaðarmála
Aldur umsækjenda | Fjöldi |
---|---|
18 til 29 ára | 29 |
30 til 39 ára | 23 |
40 til 49 ára | 42 |
50 til 59 ára | 20 |
60 til 69 ára | 6 |
70 ára til 83 ára |
Menntun | Fjöldi |
---|---|
Grunnskólapróf | 63 |
Háskólapróf | 20 |
Iðnmenntun | 22 |
Stúdentspróf | 15 |
Búsetuform | Fjöldi |
---|---|
Leiga | 71 |
Eigin fasteign | 1 |
Annað | 18 |
Félagsleg leiga | 11 |
Húsnæðislaus | 10 |
Búseturéttur | 1 |
Í foreldrahúsum | 8 |
Atvinnustaða | Fjöldi |
---|---|
Í atvinnu | 42 |
Örorka eða lífeyrir | 47 |
Atvinnulaus | 24 |
Í námi | 2 |
Sjálfstætt starfandi | 3 |
Heimavinnandi | 2 |