Hlutverk
Hlutverk Stafrænnar heilsu er að:
samhæfa öll stafræn verkefni á einn stað með skýrri forgangsröðun.
leiða og styðja við nýsköpun með stofnunum og nýsköpunarsamfélaginu.
tryggja yfirsýn og forgangsröðun, minnka sóun og efla innleiðingu stafrænnar tækni til að skapa heilbrigðiskerfi framtíðarinnar.
Verkefni Stafrænnar heilsu er einnig að taka saman og forgangsraða þeim verkefnum sem brýnust eru til að mæta þörfum skjólstæðinga til þess að bæta þjónustu og upplifun þeirra ásamt því að tengja heilbrigðisþjónustu betur við nýsköpunarsamfélagið.
