Norrænt gervigreindarkort í heilbrigðisþjónustu
3. september 2026
Norræna gervigreindarkortið, sem sýnir yfirlit yfir gervigreindarverkefni í opinberri heilbrigðisþjónustu á Norðurlöndunum, hefur nú verið birt.

Kortið var kynnt á norrænni ráðstefnu um gervigreind í háskólasjúkrahúsum sem fram fór á Karolinska sjúkrahúsinu í Svíþjóð nýverið. Á ráðstefnunni voru um 250 aðilar frá Norðurlöndunum, Eystrasaltsríkjunum og víðar þar sem rædd voru þau fjölmörgu tækifæri og áskoranir sem fylgja innleiðingu lausna sem byggja á gervigreind í klínísku starfi. Yfirlæknir Stafrænnar heilsu, Gunnar Thorarensen, sótti ráðstefnuna og tók þátt í pallborði þar sem rædd voru siðferðis- og lögfræðileg álitamál.
Yfirlitskortið tekur til Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar og gefur gagnvirka mynd af því hvernig gervigreind er þróuð og notuð í heilbrigðiskerfum landanna, allt frá frumgerðum til lausna sem þegar eru komnar í daglega notkun.
Stafræn heilsa tók þátt í verkefninu fyrir Íslands hönd og lagði til gögn um gervigreindarverkefni í íslenskri heilbrigðisþjónustu.
Markmið kortsins er að auka gagnsæi, miðla þekkingu og efla samstarf þvert á landamæri. Með því að gera gervigreindarverkefni sýnileg geta heilbrigðisstofnanir, ákvörðunaraðilar og vísindafólk lært hvert af öðru, greint sameiginlegar áskoranir og fundið tækifæri til samstarfs.
Flokkar og gagnalíkan kortsins voru þróuð í sameiningu af starfshópi með fulltrúum allra fimm landanna og verður kortið uppfært reglulega. Það gefur raunsæja mynd af stöðunni hverju sinni og sýnir hversu mörg spennandi verkefni eru í gangi á Norðurlöndunum sem geta bætt gæði heilbrigðisþjónustu og upplifun notenda með hjálp nýjustu tækni.
