Fara beint í efnið
Stafræn heilsa Forsíða
Stafræn heilsa Forsíða

Stafræn heilsa

Drög að frumvarpi um Stafræna heilsu til umsagnar

5. ágúst 2026

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt drög að frumvarpi um Stafræna heilsu.

Heilbrigðisráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt drög að frumvarpi um Stafræna heilsu.

Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildstæð lagaumgjörð um uppbyggingu og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins sem Stafræn heilsa mun leiða.

Frumvarpið leggur grunn að betri, skilvirkari og öruggari heilbrigðisþjónustu, þar sem réttar upplýsingar nýtast betur, samfella í þjónustu verði efld og þarfir notenda settar skýrar í forgrunn.

Stafræn heilbrigðisþjónusta hefur þróast hratt síðustu ár og gegnir sífellt stærra hlutverki í heilbrigðiskerfinu. Í úttekt heilbrigðisráðuneytisins á stafrænni þróun árið 2025 kom fram að ábyrgð á sameiginlegum stafrænum innviðum væri dreifð á marga aðila og skýra ábyrgðarskipan skorti. Frumvarpið er svar við þeirri niðurstöðu.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að Stafræn heilsa annist uppbyggingu, rekstur og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Lagt er til að styrkja lagaheimildir um staðla, upplýsingaöryggi og vinnslu persónuupplýsinga sem nauðsynleg er vegna reksturs innviðanna. Til að tryggja samræmi eru einnig lagðar til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um sjúkraskrár og lögum um landlækni og lýðheilsu.

Frumvarpið er liður í framkvæmd Heilbrigðisstefnu til ársins 2030 og stefnu um stafræna heilbrigðisþjónustu. Við hvetjum alla hagaðila til að senda inn umsögn í Samráðsgátt.

Stafræn heilsa

Hafa samband

Sími: 545 8700
Netfang: sh@hrn.is



Stafræn heilsa er hluti af heilbrigðisráðuneytinu