Til umsagnar
4.–18.8.2026
Í vinnslu
Samráði lokið
Mál nr. S-147/2026
Birt: 4.8.2026
Fjöldi umsagna: 0
Drög að frumvarpi til laga
Heilbrigðisráðuneytið
Lýðheilsa og stjórnsýsla velferðarmála
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar drög að frumvarpi um Stafræna heilsu.
Undanfarin ár hefur stafræn heilbrigðisþjónusta þróast hratt og stafrænar lausnir gegna sífellt veigameira hlutverki í veitingu heilbrigðisþjónustu. Þessi þróun hefur í för með sér auknar kröfur um örugg upplýsingaskipti og samræmda skráningu, miðlun og vinnslu heilbrigðisupplýsinga.
Í mati heilbrigðisráðuneytisins á stafrænni þróun heilbrigðiskerfisins árið 2025 kom fram að ábyrgð og þróun sameiginlegra stafrænna innviða væri dreifð á marga aðila og skortur væri á skýrri ábyrgðarskipan, samræmdum tæknilegum kröfum og miðlægri samhæfingu. Í skýrslunni var lagt til að komið yrði á fót miðlægri einingu sem bæri ábyrgð á uppbyggingu, þróun og samhæfingu stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins.
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildstæð lagaumgjörð um uppbyggingu, rekstur, þróun og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Jafnframt er lagt til að kveðið verði á um hlutverk og verkefni Stafrænnar heilsu, sem samkvæmt frumvarpinu verður starfrækt undir yfirstjórn ráðherra og fer með framkvæmd verkefna á þessu sviði.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að Stafræn heilsa annist uppbyggingu, rekstur, þróun og samhæfingu sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Lagt er til að styrkja lagaheimildir um samvirkni, staðla, upplýsingaöryggi og þá vinnslu persónuupplýsinga sem nauðsynleg er vegna reksturs innviðanna. Frumvarpinu er ætlað að stuðla að öruggari og samfelldari heilbrigðisþjónustu, bættri nýtingu fjármuna og skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi þróun stafrænnar heilbrigðisþjónustu og þátttöku Íslands í alþjóðlegu samstarfi á því sviði. Jafnframt er því ætlað að skapa betri forsendur fyrir nýsköpun og þróun nýrra lausna hjá opinberum og einkareknum aðilum sem starfa á sviði heilbrigðismála. Til að tryggja samræmi í lagaumgjörð heilbrigðiskerfisins felur frumvarpið í sér nauðsynlegar breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, lögum um sjúkraskrár og lögum um landlækni og lýðheilsu.
Frumvarpið er liður í framkvæmd Heilbrigðisstefnu til ársins 2030, stefnu um stafræna heilbrigðisþjónustu og annarrar stefnumótunar stjórnvalda um stafræna umbreytingu opinberrar þjónustu. Því er einnig ætlað að styrkja lagalegan grunn fyrir áframhaldandi þróun stafrænnar heilbrigðisþjónustu og öruggri meðferð heilbrigðisupplýsinga.
Umsagnir eru birtar jafnóðum og þær berast.
Stafræn heilsa
hrn@hrn.is