Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Umboð

Einstaklingar og fyrirtæki geta gefið öðrum umboð til að óska eftir upplýsingum fyrir sína hönd.

Starfsfólk Skattsins er bundið af þagnarskyldu og ströngum öryggiskröfum. Upplýsingum um fjármál einstaklinga eða fyrirtækja er aldrei deilt nema heimild liggi fyrir.

Einstaklingar og fjölskyldur

Ef einhver sækir um upplýsingar fyrir þína hönd þarf skriflegt umboð frá þér. Sum umboð er hægt að veita rafrænt í gegnum aukenningu á Mínum síðum Íslands.is. Önnur umboð þarf að gefa skriflega í viðurvist tveggja votta, sem þurfa að staðfesta rétta dagsetningu og undirritun umboðsins.

Fyrirtæki og félög

  • Ef einhver sækir um upplýsingar eða gögn um fyrirtækið, þarf skriflegt umboð sem er vottað og undirritað af stjórnarmanni eða eiganda fyrirtækisins.

  • Sum umboð, eins og til að veita aðgang að Tollalínu og Veftollafgreiðslu eru veitt rafrænt á mínum síðum Íslands.is.

Nánar um hvernig fyrirtæki geta veitt rafrænt umboð með auðkenningu á Ísland.is.

Eyðublöð fyrir skrifleg umboð og upplýsingagjöf