Tollafgreiðslugengi
Gildistími og skráning gengis
Við tollafgreiðslu sendinga á degi hverjum skal ákvörðun tollverðs í tollskýrslum byggð á tollafgreiðslugengi eins og opinbert viðmiðunargengi er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta mánudag á undan.
Gengið sem Seðlabanki skráir á hverjum mánudegi gildir frá og með þriðjudeginum eftir og til og með næsta mánudegi.
Þegar helgidag eða almennan frídag ber upp á mánudag skal miða tollafgreiðslugengi við opinbert viðmiðunargengi næsta virka dags á undan.
Sérregla um útflutning
Við útflutning skal nota tollafgreiðslugengi á brottfarardegi flutningsfars ef tollskýrsla er gerð og tollafgreidd eftir brottfarardag.
Í hraðflutningum og bráðabirgðatollafgreiðslu
Við afgreiðslu hraðflutninga og bráðabirgðatollafgreiðslu skal miða við tollskrá og gengi á þeirri dagsetningu sem fram kemur í sendingarnúmeri (komudaginn) þegar skýrslan er afgreidd.