Skuldleysisvottorð
Skuldleysisvottorð staðfestir að engir gjaldfallnir skattar eða opinber gjöld séu skráðar á kennitöluna þína eða fyrirtækis.
Skuldleysisvottorð er aðeins gefið út ef engar kröfur eru komnar yfir gjalddaga. Kröfur geta verið gjaldfallnar og komið í veg fyrir afgreiðslu vottorðsins þótt síðasti greiðsludagur (eindagi) sé ekki liðinn.