IFRS - Alþjóðlegir reikningsskilastaðlar
Áhersluatriði í IFRS- eftirliti
Verðbréfaeftirlit Evrópu gefur út á hverju ári áhersluatriði fyrir eftirlit hvers reikningsárs.
Áhersluatriðin ná yfir þau svið reikningsskilanna þar sem talið er að mestra úrbóta sé þörf. Þau eru birt til upplýsinga fyrir stjórnendur, endurskoðendur og aðra sem koma að gerð reikningsskila.