Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

IFRS: alþjóðlegir reikningsskilastaðlar

Félög sem hafa skráð verðbréf á skipulögðum verðbréfamarkaði í:

  • ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, EES,

  • stofnríki Fríverslunarsamnings Evrópu, EFTA,

  • Færeyjum,

þurfa að fylgja alþjóðlegum stöðlum, IFRS, um skil á ársreikningum og samstæðureikningum. Skatturinn hefur eftirlit með þessum skilum.

Skil á gögnum

Skatturinn getur krafist upplýsinga og gagna sem eru nauðsynleg til að framkvæma eftirlitið. Þar með talið vinnuskjöl sem varða reikningsskil frá stjórn, framkvæmdastjóra og endurskoðanda eftirlitsskylds félags. Félögum er skylt að veita umbeðnar upplýsingar innan hæfilegs frests.

Dagsektir

Leyfilegt er að leggja á dagsektir ef félag veitir ekki umbeðnar upplýsingar. Þær geta verið frá 10 þúsund krónum til 100 þúsund krónur á dag.

Áfallnar dagsektir falla ekki niður þó svo að eftirlitsskylt félag verði síðar við kröfu ársreikningaskrár.

Niðurstöður eftirlits

Ef reikningsskil reynast ekki í samræmi við IFRS og ákvæði í öðrum lögum og reglugerðum sem við eiga, getur félag þurft að:

  • Leiðrétta reikningsskil

  • Birta opinberlega breytingar eða viðbótarupplýsingar

Ársreikningaskrá getur birt opinberlega upplýsingar um nauðsynlegar breytingar að hennar mati, verði félag ekki við kröfum hennar.

Einnig getur ársreikningaskrá óskað eftir því við viðkomandi kauphöll að viðskiptum með verðbréf eftirlitsskylda félags verði tímabundið hætt.

Gjöld

Árlegt gjald fyrir umsýslu og eftirlit er 100 þúsund krónur á hvert móðurfélag og 50 þúsund krónur á hvert dótturfélag innan samstæðu. Gjöldin renna í ríkissjóð.

Áhersluatriði

Ársreikningaskrá heldur stað- og fjarkynningu á áhersluatriðum í eftirliti hvers árs og birtir á vefnum.