Niðurstöður álagningar einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, verða birtar á þjónustuvef Skattsins 21. maí. Inneignir verða greiddar út 1. júní og launagreiðendur fá upplýsingar um skuldir til að draga af launum.
Niðurstöður álagningar einstaklinga 2026, vegna tekna 2025, verða birtar á þjónustuvef Skattsins 21. maí. Inneignir verða greiddar út 1. júní og launagreiðendur fá upplýsingar um skuldir til að draga af launum.
Við álagningu eru gerðir upp ofgreiddir og vangreiddir skattar vegna fyrra árs auk þess sem lögð eru á gjöld svo sem útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra.
Inneignir eru lagðar inn á þann bankareikning sem skráður er hjá innheimtumönnum. Ef engar upplýsingar um skráðan bankareikning liggja fyrir er hægt að skrá nýjan eða breyta fyrri skráningu á þjónustuvef Skattsins.
Skuldir - dreifa greiðslu á lengra tímabil
Skuld eftir álagningu er skipt niður á allt að sjö gjalddaga. Innheimta skulda fer almennt í gegnum launagreiðendur. Þeim er send krafa um að draga skuld frá launum hvers mánaðar.
Gera greiðsluáætlun
Þau sem það vilja geta samið um að gera nýja greiðsluáætlun og skipta greiðslunni á lengra tímabil.Greiðsluáætlun er gerð til að lækka mánaðarlega greiðslubyrði en á móti kemur hærri vaxtakostnaður.
Innheimta hjá sjálfstætt starfandi og fólki ekki í vinnu
Þau sem ekki eru í vinnu, svo sem á eftirlaunum eða fæðingarorlofi, eða starfa sjálfstætt fá sendan greiðsluseðil vegna innheimtu skatta eftir álagningu.
Leiðbeiningar
Útbúnar hafa verið stuttar leiðbeiningar um hvernig lesa megi úr álagningunni á íslensku, ensku og pólsku, sem og bæklingar á íslensku og ensku.
Nánari upplýsingar um niðurstöðu álagningar má fá með því að senda fyrirspurn eða hringja. Einnig getur spjallmennið svarað ýmsum spurningum varðandi álagninguna og innheimtu.
Spurt og svarað
Niðurstöður álagningar eru aðgengilegar á þjónustuvef og þarf að nota rafræn skilríki eða veflykil til innskráningar. Mögulegt er að panta veflykil og fá hann sendan í heimabanka. Mælt er með notkun rafrænna skilríkja sem öruggari innskráningarleið.
Niðurstöðu álagningar má kæra með því að senda inn beiðni um leiðréttingu. Eftir innskráningu á þjónustuvef skal velja "Framtal" og "Beiðni um leiðréttingu".
Þar er hægt að gera grein fyrir þeim efnisatriðum sem þarf að breyta á framtalinu sem liggur til grundvallar og senda viðbótargögn máli þínu til stuðnings.
Þegar niðurstöður kærunnar liggja fyrir verður bréf sent í Stafræna pósthólfið á Ísland.is.
Framtal þeirra sem eiga eftir að skila er enn aðgengilegt á þjónustuvef. Þau sem eiga eftir að skila þurfa að skrá sig inn á þjónustuvef með rafrænum skilríkjum eða veflykli og skila framtalinu.
Framtalið verður þá tekið fyrir sem kæra og er bréf sent í Stafræna pósthólfið á Ísland.is þegar niðurstaða liggur fyrir.
Því er ekki auðvelt að svara. Flest þurfa að greiða útvarpsgjald og gjald í framkvæmdasjóð aldraðra. Ef þú skuldar umfram það eru hér nokkrar ástæður sem vert er að skoða hvort eigi við um þig.
Persónuafsláttur ofnýttur eða skattur greiddur í röngu skattþrepi, til dæmis vegna greiðslna frá fleiri en einum launagreiðanda
Tilfallandi verktakagreiðslur
Styrkur sem ekki hefur verið færður frádráttur á móti.
Já, hægt er að gera greiðsluáætlun og lækka mánaðarlega greiðslubyrði.Hægt er að ganga frá greiðsluáætlunum í sjálfsafgreiðslu á Ísland.is að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Inneignir eru lagðar inn á þann bankareikning sem er skráður. Hafi upplýsingar um bankareikning ekki verið veittar er einfalt að setja þær inn á Þjónustuvef Skattsins.