Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Embætti landlæknis Forsíða
Embætti landlæknis Forsíða

Embætti landlæknis

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fréttatilkynning frá almannavarnadeild og sóttvarnalækni 15. júlí

15. júlí 2020

Tveir einstaklingar með íslenskt ríkisfang, sem völdu að fara í sóttkví við komu til landsins frá áhættusvæði, greindust á síðastliðnum sólarhring með Covid-19. Viðkomandi komu til landsins fyrir sjö dögum og fóru í skimun eftir að hafa fengið einkenni veirunnar.

Tveir einstaklingar með íslenskt ríkisfang, sem völdu að fara í sóttkví við komu til landsins frá áhættusvæði, greindust á síðastliðnum sólarhring með Covid-19. Viðkomandi komu til landsins fyrir sjö dögum og fóru í skimun eftir að hafa fengið einkenni veirunnar. 

730 farþegar koma með Norrænu til Seyðisfjarðar á morgun. Sýnataka á farþegum fór fram í Hirtshals í Danmörku áður en skipið hélt þaðan á þriðjudag. Einn farþega greindist með jákvætt smit fyrir Covid-19. Óvíst er hvort smitið sé gamalt en viðkomandi ber ekki einkenni veirunnar. Frekari sýnataka og mótefnamæling fer fram þegar skipið kemur til Seyðisfjarðar. Með einstaklingnum í ferð eru fimm aðrir og eru allir í einangrun um borð í skipinu. Aðrir farþegar eru ekki taldir útsettir fyrir smiti og verða því ekki fyrir áhrifum vegna þessa.

Tekin voru 2.158 sýni við landamæraskimun í gær, 14. júlí og greindust sex þeirra jákvæð. Tveir af þeim voru með mótefni en beðið er eftir niðurstöðum úr mótefnamælingu hjá tveimur og eru viðkomandi í einangrun á meðan. Tvö bíða greiningar. Alls eru nú 11 manns með virk smit á Íslandi og eru þau öll í einangrun.

Frá og með morgundeginum bætast ferðamenn frá Danmörku, Noregi, Finnlandi ogÞýskalandi á lista með Færeyjum og Grænlandi og verða undanþegnir kröfum um skimun og sóttkví vegna Covid-19. Sjá nánar.