Keðjusagarnámskeið á Austurlandi
18. október 2024
kl. 09:00 til 17:30
Hallormsstað,
701 Egilsstöðum
Garðyrkjuskólinn - FSu býður upp á námskeið í trjáfellingum og meðferð keðjusagar dagana 18.-20. október í starfstöð Lands og skógar í Hallormsstaðaskógi. Hámarksfjöldi þátttakenda er tíu.
Námskeiðið er öllum opið. Það hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir en vilja bæta fellingartækni sína eða öðlast meiri þekkingu á meðferð og umhirðu saga. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Fyrsti dagur er bóklegur þar sem meðal annars er farið yfir:
fellingartækni, öryggisatriði við fellingu trjáa og líkamsbeitingu.
leyfi og öryggissjónarmið varðandi fellingu trjáa í þéttbýli.
val á trjám til fellingar.
grisjun skóglenda, trjáþyrpinga og garða.
Á öðrum degi fá nemendur að kynnast innviðum keðjusagarinnar:
Keðjusög tekin í sundur.
Einföld bilanaleit í söginni og hefðbundið viðhaldi.
Þrif sagar.
Brýning keðju.
Loks verður einn og hálfur verklegur dagur í trjáfellingum og grisjun í skógi, þar sem lögð verður áhersla á rétta fellingartækni og uppröðun viðarins.
Þeir nemendur sem eiga keðjusög, keðjusagarbuxur, keðjusagarstígvél eða hjálm eru beðnir að taka búnað sinn með á námskeiðið. Aðrir geta fengið búnaðinn lánaðan á námskeiðinu.
Kennari: Björgvin Örn Eggertsson skógfræðingur hjá Garðyrkjuskólanum - FSu (Fjölbrautaskóla Suðurlands).
Tími: (3x)
- Fim. 18. okt. kl. 9-17.30.
- Fös. 19. okt. kl. 9-17.30.
- Lau. 20. okt. kl. 9-16.Staður: Hjá Landi og skógi, Hallormsstað í Fljótsdal (28 kennslustundir). Námskeiðið er á framhaldsskólastigi og má meta til 1 einingar af námi í garðyrkjufræðum.
Verð: 79.000 kr. (kennsla og gögn innifalin í verði).
Skráning: Í netfangið gardyrkjuskolinn@fsu.is.
Skráningarfrestur er til 8. október.