Grænni skógar I
27. september 2024
Reykir,
Ölfus
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/39R7IV34QVO1yCcLgnbsfZ/deae3c512ff7985c689cad949e1926e6/Graenni_Skogar_I_H24_FB_time_line.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Grænni skógar I er námskeiðaröð sem ætluð er skógræktendum og öðrum skógareigendum sem vilja auka við þekkingu sína og árangur í skógrækt.
Námskeiðaröðin tekur 5 annir en þátttakendur taka alls 15 námskeið á þeim tíma eða að jafnaði 3 á hverri önn. Fyrsta námskeiðið verður haldið í Garðyrkjuskólanum á Reykjum í Ölfusi dagana 27. og 28. september 2024.
Hvert námskeið er skipulagt þannig að kennt er á föstudegi kl. 16-19 og á laugardegi kl. 9-16. Námskeiðin eru byggð upp sem blanda af fyrirlestrum, verklegum æfingum og vettvangsheimsóknum. Að auki verður farið í námsferð innanlands og verður hún kynnt sérstaklega.
Nánari upplýsingar veitir Björgvin Örn Eggertsson, verkefnisstjóri Grænni skóga, í síma 616 0828 eða með tölvupósti boe@fsu.is.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6FtX8CbHeRph9aiEzACplj/de314724731155a98c6c2277d4ae9407/Graenni_Skogar_I_H24_A4.jpg?w=50)
![Grænni skógar I - haust 2024](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/6FtX8CbHeRph9aiEzACplj/de314724731155a98c6c2277d4ae9407/Graenni_Skogar_I_H24_A4.jpg)