Fara beint í efnið

Móttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis á HVE

Leiðbeiningar og ráðleggingar fyrir þolendur kynferðisofbeldis

  • Hringið í  1700 utan dagvinnutíma til að fá samband við lækni/hjúkrunarfræðing á heilsugæslu

  • Hringið í 112 fyrir neyðartilfelli

  • Netspjall 112 er alltaf opið.

    • Hægt er að eiga nafnlaust netspjall ef ekki er óskað eftir neyðarþjónustu á staðinn

Hvert get ég leitað aðstoðar?

  • Sérstök neyðarmóttaka fyrir þolendur kynferðisofbeldis er opin allan sólarhringinn á 

    Landspítala

  • Hægt er að koma á Slysadeild HVE Akranesi allan sólarhringinn, þar er hægt að fá aðstoð og ráðlegggingar

  • Á heilsugæslustöðvum í heimabyggð

    er hægt að fá aðstoð og ráðleggingar á opnunartíma

  • Hjálparsími 112 og vaktsími 1700 beina brotaþola utan dagvinnutíma til vakthafandi læknis á starfsstöðvum HVE sem aðstoðar við viðeigandi ráðstafanir hverju sinni.

Reyndu að leita aðstoðar sem fyrst

Reyndu að leita aðstoðar sem fyrst. Það er best fyrir heilsu þína og mögulega rannsókn á brotinu.

Fyrstu sólarhringirnir eftir að brot er framið, er mjög mikilvægur tími sérstaklega varðandi lífsýnasöfnun ef ákveðið er að kæra brotið síðar.

  • Gögnin/lífsýnin er þá hægt að nota til að styðja mál fyrir dómi. Með lífsýnum er átt við þau efni úr fólki sem getur veitt líffræðilegar upplýsingar um það

Hægt er að leita til heilsugæslu á dagvinnutíma óháð tímalengd frá broti:

  • til að fá ráðgjöf, stuðning, fræðslu og aðstoð við úrvinnslu

  • vegna sýnatöku fyrir smitsjúkdómum, kynsjúkdómum, sýkingum, þungun eða öðru slíku

  • hægt að fá tengingu við réttargæslumann sé þess óskað óháð tímalengd frá broti eða ákvörðun um kæru

Hvernig fæ ég réttargæslumann?

  • Láta úthluta þér réttargæslumanni á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis á Landspítala.

  • Velja réttargæslumann af lista hjá lögreglu eða þolendamiðstöð.

  • Leita til lögmanns sem þú vilt að taki verkið að sér.

Að takast á við áfall

hve-logo
Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Aðalskrif­stofa

Merkigerði 9,
300 Akranes

432 1000
hve@hve.is

kt. 630909-0740

Akranes

432 1000

Borg­arnes

432 1430

Búðar­dalur

432 1450

Grund­ar­fjörður

432 1350

Hólmavík

432 1400

Hvammstangi

432 1300

Ólafsvík

432 1360

Stykk­is­hólmur

432 1200