Fara beint í efnið
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Forsíða
Heilbrigðisstofnun Vesturlands Forsíða

Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Sjúkraþjálfun HVE á Akranesi fær göngustiga að gjöf

8. október 2026

Sjúkraþjálfun fær göngustiga að gjöf af tegundinni DST800 Tripele

Kaupmannasamtök Íslands afhentu sjúkraþjálfunardeild á Akranesi göngustiga að gjöf að fjárhæð 3,9 m.kr.. Göngustiginn sameinar þrjú tæki í einu, göngustigi til að ganga upp og niður stillanleg þrep, gönguflötur með stillanlegum halla og láréttar samsíða stangir til að halda í. Sniðug og fjölhæf hönnun tækisins líkir eftir hversdagslegu umhverfi sem gerir sjúklingum kleift að þjálfa og æfa mismunandi brekkur, þrep og göngulag án þess að skipta um tæki. Með því að smella á hnapp geta sjúkraþjálfarar stillt hallastigið og hæð þrepa. Áður hafa sjúkraþjálfara þurft að æfa sjúklinga í þrepum með göngu í stigum stofnunarinnar á milli hæða, er þessi stigi því mikil framför með tilliti til öryggis og aðstöðu fyrir sjúklinga.

Heilbrigðisstofnun Vesturlands

Aðalskrif­stofa

Merkigerði 9,
300 Akranes

432 1000
hve@hve.is

kt. 630909-0740

Akranes
432 1000

Borgarnes
432 1430

Búðardalur
432 1450

Grundarfjörður
432 1350

Hólmavík
432 1400

Hvammstangi
432 1300

Ólafsvík
432 1360

Stykkishólmur
432 1200