Lionsklúbbur Akraness færir gjafir
10. apríl 2026
Félagar í Lionsklúbbi Akraness færði sjúkrahúsi HVE á Akranesi gjafabréf til kaupa á búnaði

Um er að ræða fjórar gjafir:
Sciller hjartalínuritstæki til notkunar í hjartaáreynsluprófum á göngudeild.
Siemens blóðrannsóknatæki fyrir fæðingadeildina.
Mach 130 F færanlegt vinnuljós fyrir slysadeildina.
Áhöld til aðgerða á blöðruhálskirtli fyrir skurðstofuna.
Guðjón Viðar Guðjónsson formaður klúbbsins og Þórir Bergmundsson fulltrúi áhaldakaupasjóðs afhentu forstjóra og framkvæmdastjóra hjúkrunar á HVE gjafabréfið.
Lionsklúbburinn sem fagnar 70 ára afmæli á þessu ári hefur til margra áratuga verið öflugasti bakhjarl nærsamfélagsins á Akranesi á tækjakaupum fyrir sjúkrahúsið og stutt við fjölmarga þjónustuþætti með góðum tækjabúnaði.
Stofnin færir Lionsklúbbnum innilega þakkir fyrir þessar veglegu gjafir.
