Kvennadeildin fær veglega gjöf
17. mars 2026
Þann 4.mars síðastliðinn fór fram formleg afhending á endurlífgunarborði fyrir nýbura fyrir fæðingardeild HVE.

Þessi gjöf kemur sér mjög vel, bætir aðstöðu og eykur öryggi. Áður var deildin eingöngu með veggfest borð sem hentar mjög illa við bráðaaðstæður sem upp geta komið við fæðingar.
Kaup á þessum nauðsynlega búnaði styrktu Brim hf, Oddfellow stúkan Rbst. nr. 05 Ásgerður og Englaforeldrar á Akranesi.
Um er að ræða Drager Babyroo TN300 endurlífgunarborð að verðmæti um 4 m.kr.
Hrafnhildur Ólafsdóttir deildarsjóri Kvennadeildar HVE veitti búnaðinum viðtöku ásamt Ernu Valentínusdóttur ljósmóður og sögðu þær frá aðdraganda kaupa á búnaðinum og hvernig búnaður sem þessi gjörbreyti aðstöðunni á deildinni.
Á afhendinguna mættu Guðmundur Kristjánsson forstjóri Brims, fulltrúar frá Oddfellowstúkunni Ásgerði og fulltrúar frá Englaforeldrum. Forstjóri þakkaði fyrir þessa veglegu gjöf fyrir hönd stjórnar HVE.
Starfsfólk Kvennadeildar HVE þakkar kærlega fyrir stuðninginn.
