Gjöf til heilsugæslunnar í Ólafsvík frá Hollvinasamtökum HVE
29. maí 2026
Í síðustu viku færðu Hollvinasamtök HVE heilsugæslustöðinni í Ólafsvík veglega gjöf.

Um er að ræða slitlampa (raufarlampa) sem notaður er við augnskoðun og bætir greiningu og þjónustu við sjúkinga sem leita til heilsugæslunnar.
Sævar Freyr Þráinsson formaður Hollvinasamtakanna afhenti tækið formlega og þakkaði þeim sem lögðu söfnuninni lið fyrir stuðninginn. Viðstödd voru hjónin Hjálmar Kristjánsson og Lydía Rafnsdóttir sem veittu veglegt fjárframlag til söfnunarinnar ásamt Kristni Jónassyni bæjarstjóra og fulltrúa Snæfellsbæjar sem veitti einnig fjárframlag til söfnunarinnar.
Starfsfólk heilsugæslunnar í Ólafsvík og framkvæmdastjórn HVE færir Hollvinasamtökum HVE og þeim sem lögðu söfnunni lið innilegar þakkir fyrir þessa góðu gjöf og stuðninginn við starfsemi heilsugæslunnar.
